samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hér gætti örlítils misskilnings í atkvæðaskýringu hv. þm. Höllu Hrundar Logadóttur. Þetta er ekki breytingartillagan sem er í nefndarálitinu, sem eru drög að breytingartillögu sem við sem nefnd munum vilja leggja fram ef svigrúm skapast þegar innviðafélagið fer í gang. Hér er hins vegar að finna mikið af góðum breytingartillögum sem snúa að framtíðarsýn í samgöngumálum og ýmsum aðgerðum. Hér erum við t.d. að tala um nauðsyn þess að setja í gang ferjuáætlun, nokkuð sem hefur aldrei verið til. Ferjuflotinn var allur búinn til á síðustu öld, fyrir utan eitt skip sem er sjö ára gamalt, þannig að þetta er mjög tímabær aðgerð. Hér erum við að tala um að setja upp viðbragðshóp sem tekur til starfa þegar það verður samgöngurof líkt og gerðist þegar samgöngur við Vestmannaeyjar voru í hnút hér í vetur. Hér er verið að tala um að skoða nýtt flugvallarstæði á Vestfjörðum og fleira af góðum aðgerðum sem munu skipta máli fyrir framtíð samgangna á Íslandi.