157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:29]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Það er mikið fagnaðarefni að Alþingi hafi tekist í samvinnu að ljúka þessu stóra verkefni. Við erum að samþykkja samgönguáætlun sem ræðst af krafti á innviðaskuldina. Það eflir öryggi á vegum landsins. Innviðafélagið kemur jarðgangagerð af stað. Það er mikilvægt atriði. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref fyrir samfélagið allt. En það er erfitt að gera öllum til geðs í samgöngumálum, það vitum við öll. Ef við setjum hlutina í samhengi, jafnvel þegar tekið er tillit til breytinga á verðlagi, erum við að setja 70 milljörðum meira í samgöngur en í síðustu áætlun, 70 milljörðum meira, áætlun sem síðasta ríkisstjórn gat ekki komið sér saman um, áætlun sem dagaði uppi. Þessum stjórnarmeirihluta tókst hins vegar að taka erfiðar ákvarðanir og ljúka verkefninu.

Ég vil nota tækifærið og þakka Maríu Rut Kristinsdóttur, formanni umhverfis- og samgöngunefndar, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttir framsögumanni og öllum nefndarmönnum fyrir afar gott og faglegt samstarf. Einnig vil ég þakka starfsfólki innviðaráðuneytisins og Vegagerðinni fyrir þeirra ómetanlegu vinnu við þessa áætlun. Að lokum vil ég þakka landsmönnum öllum fyrir samgönguáætlunina.