157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:33]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmönnum öllum fyrir samvinnu í þessu máli og ágætar umræður hér við 2. umræðu. Eins og þar hefur komið fram eru komnar fram ábendingar bæði um staðsetningu á gjaldtökuheimildum sem eigi heima í frumvarpi eða lögum um innviðafélag frekar en í vegalögum eins og hér er stillt upp, jafnframt að hnykkja þurfi á hlutverki 6. gr. fjárlaga varðandi það að færa eignir í félagið og tilgreina þær eignir sem færu fyrst þar inn. Í þriðja lagi er komin fram breytingartillaga frá hv. þm. Jens Garðari Helgasyni sem er í anda þess sem meiri hlutinn getur séð fyrir sér en er þó þannig að það þarf að kíkja betur á hana þannig að við munum fella hana við þessa umfjöllun en taka hana fyrir milli 2. og 3. umræðu og koma hugsanlega hér inn með þrjár breytingartillögur við frumvarpið til að sem breiðust sátt geti skapast um það.