innviðafélag.
Virðulegur forseti. Það er samstaða um markmið þessa félags. En hins vegar er þetta mál því miður einstaklega illa unnið og þrátt fyrir að það hafi verið mikil umræða hér í þingsal er okkur ekki enn þá ljóst hvert meiri hlutinn ætlar sér með þetta. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi nokkur atriði sem hafa verið til umræðu en síðan mætti líka nefna að samspil samgönguáætlunar og innviðafélags er ekki ljóst. Sömuleiðis er heldur ekki ljóst hver aðkoma kjörinna fulltrúa á að vera að þessu. Og svo er kannski stærsta einstaka málið, að miðað við umfjöllun meiri hluta hv. fjárlaganefndar um málið þá er þetta allt annað mál en við sjáum í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ég treysti því og fer fram á að við tökum þetta upp á milli 2. og 3. umræðu í hv. fjárlaganefnd. En það er alveg ljóst að þær yfirlýsingar sem stjórnarliðar og ráðherra hafa nefnt hér varðandi verkefni eins og Fljótagöng og annað slíkt, að þau fari í gang, eða varðandi Kjalarnesveg, eru orðin tóm og mikilvægt (Forseti hringir.) að leiðrétta þetta þannig að fólk sé ekki með einhverjar væntingar sem engin innstæða er fyrir.