157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:36]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að málið fari aftur inn til nefndar milli 2. og 3. umræðu og fagna líka ummælum hv. framsögumanns málsins þar sem gefinn var ádráttur um gagnlegar breytingar sem verða á málinu. Ég vil þó nefna það hér líka að það hefur verið nokkur umræða hérna við umræðu málsins og Miðflokkurinn hefur lagt á það áherslu að það geti ekki farið svo að innviðafélag þetta verði úr öllum tengslum við fjárveitingavaldið, löggjafann, með þeim hætti sem búið er um það í þessu frumvarpi. Þannig að ég hvet hv. fjárlaganefnd til þess að skoða það sérstaklega hvernig bæta megi tengsl þingsins við þetta félag þannig að tryggt verði gagnsæi og fyrirsjáanleiki gagnvart löggjafarvaldinu og fjárveitingavaldinu til framtíðar.