157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:37]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um stofnun innviðafélags, sem er afar gott mál sem ég fagna mjög að sé á döfinni. Það hefur verið töluvert mikil samstaða hér á þingi um málið þó að mörgum hv. þingmönnum finnist vanta upp á svo að stofnun innviðafélags geti náð tilgangi sínum. Frumvarpið verður nú tekið inn í hv. fjárlaganefnd á milli 2. og 3. umræðu og þá næst hugsanlega enn meiri samstaða um málið. Ég leyfi mér að fagna því og ég vísa til þess sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson sagði um þær hugsanlegu breytingar sem við munum ræða á milli 2. og 3. umræðu.