157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að eiga innviðafélag til uppbyggingar í samgöngumálum. Við eigum reyndar eitt sem heitir Spölur. Þessi leið sem hér er farin á sér enga sambærilega stoð neins staðar annars staðar í kringum okkur; ekki í Noregi, ekki í Danmörku, ekki á Írlandi, ekki í Hollandi, sem öll hafa farið mismunandi leiðir í því að reyna að útfæra félag. Engu af þessum löndum hefur dottið í hug að taka þetta mál frá löggjafanum, frá Alþingi í okkar tilviki, frá Vegagerðinni, heyrir ekki einu sinni undir samgönguráðherrann. Hér er um að ræða fjárfestingarfélag sem gæti alveg eins verið að byggja gagnaver eða eitthvert annað húsnæði þar sem engar kröfur eru settar um öryggi eða byggðasjónarmið heldur eingöngu arðsemi. Það er ótrúlegt að það skuli gerast undir jafnaðarmannastjórn Kristrúnar Frostadóttur að setja á laggirnar slíkan kost sem er nýfrjálshyggja og hefur hvergi verið gert í löndum í kringum okkur og alls ekki í Færeyjum, alls ekki. Því miður er þetta skrýtnasta útfærsla af innviðafélagi til uppbyggingar sem ég hef séð og kynnt mér á fjölmörgum árum og síðustu árum þegar við höfum verið að skoða mögulega uppbyggingu á slíku félagi.