157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:42]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég er hlynnt hugmynd um innviðafélag en tilgangurinn má ekki bara vera aukin skattheimta á landsmenn og það má ekki vera sett upp til þess að standa í bókhaldsbrellum til að fela ríkisskuldir. Þá væri betra að horfa til vel heppnaðra framkvæmda eins og Hvalfjarðarganga þar sem áhættan var ekki á íslenskum skattgreiðendum heldur á einkaaðilum. Í öðrum löndum þar sem vel hefur tekist til með innviðafélag, til að mynda Sund & Bælt í Danmörku, er lykillinn sagður breið pólitísk samstaða frá byrjun og alþingi Dana ákveður hvaða verkefni er ráðist í. Sund & Bælt hefur ekki sjálfstæði til að ákveða forgangsröðun verkefna en íslenska ohf. innviðafélagið á að hafa mjög víðtækar heimildir sem ættu að eiga heima á Alþingi Íslendinga. Því hvet ég nefndarmenn í fjárlaganefnd milli 2. og 3. umræðu til að reyna að mynda breiðari samstöðu um þetta félag.