innviðafélag.
Virðulegur forseti. Innviðafélag og innviðafélag er ekki sama félagið. Það skiptir máli hvernig innviðafélag er útfært. Það er alveg rétt að hér hefur verið rætt um það í mörg ár hvernig hægt væri að koma á fót innviðafélagi til að létta á samgönguáætlun. Því miður er það nú þannig að þetta frumvarp sem við ræðum hér í dag um þetta innviðafélag er mjög óljóst og það er mjög loðið hvernig það á að virka. Því fagna ég því að málið eigi að fara aftur inn í fjárlaganefnd til þess að reyna að bæta þar úr. Það eru augljósir ágallar á frumvarpinu. Það er verið að færa valdið frá okkur hér á Alþingi. Það verða stórar framkvæmdir bæði í innviðafélagi og hjá Betri samgöngum sem þingið mun ekki hafa aðkomu að. Félagið mun geta farið í arðbærar framkvæmdir eins og C-hluta félög gera, sem þýðir að fjárfestingarnar verða hér í kringum höfuðborgarsvæðið en litlar á landsbyggðinni. Fljótagöng, virðulegur forseti, eru ófjármögnuð í samgönguáætlun og ljóst að þau munu ekki falla inn í C-hluta í þessu innviðafélagi (Forseti hringir.) þannig að allt tal um að það sé verið að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangamálum er þvaður.