157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:48]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ef eitthvað er óljóst og loðið þá mæli ég með því að lesa aftur nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar af því að það er mjög gott. En hér erum við að brjóta blað í sögu samgöngumannvirkja og uppbyggingar innviða hér á landi með því að stofna innviðafélag. Þetta er leikbreytir þegar kemur að stórum samgönguframkvæmdum um allt land. Ég mun glöð segja já við þessu stóra framfaraskrefi þegar kemur að uppbyggingu samgöngumannvirkja.