157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:49]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við í Framsókn styðjum vissulega að komið sé á fót innviðafélagi en það skiptir máli hvernig búið er um hnútana. Hér er verið að leggja til að við samþykkjum fjárfestingarfélag, ekki innviðafélag. Eins og kemur fram í málinu verður aðkoma þingsins algjörlega óljós. Við erum að framselja ákvörðunarvaldið þegar kemur að framkvæmdum til stjórnar úti í bæ og munum ekkert hafa um það að segja hvernig gjaldtökuheimildir verða. Það kemur m.a. fram í frumvarpinu að það verður heimild til þess að setja Kjalarnesveg, Reykjanesbraut, Suðurlandsveg og Hvalfjarðargöng, sem landsmenn eru búnir að greiða nú þegar einu sinni, inn í þetta félag og taka gjald fyrir notkun þessara framkvæmda. Þetta er alveg umhugsunarvert og þingið mun ekki hafa neina aðkomu þegar kemur að þessu. Það á að keyra þetta mál í gegn núna við þinglok. Það er þannig búið um hnútana að það þarf að fara í nefnd aftur á milli umræðna og tekur líklega verulegum breytingum þar, sem segir okkur að málið er ekki fullbúið. Asinn er svo mikill (Forseti hringir.) að það á að keyra það í gegn og ég er ansi hrædd um að við munum sjá fram á það að annað frumvarp líti dagsins ljós í haust einmitt til að leiðrétta það sem við erum að fara að ákveða hér í þingsal.