157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:50]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að taka undir orð hv. þm. Ingibjargar Isaksen um óvissuna sem þetta felur í sér sem tengist gjaldtöku á vegi líkt og Reykjanesbrautinni, sem er auðvitað óásættanlegt. Þar fyrir utan er þrennt sem ég vil sérstaklega nefna. Í fyrsta lagi er það þessi skortur á pólitískri ábyrgð eða tengingu við innviðafélagið sem er áhyggjuefni. Í annan stað er það tímafaktorinn, að það sé raunverulega hægt að setja fram tímasettar áætlanir eins og samgönguáætlun er í sjálfu sér í grunninn. Við viljum að innviðafélagið geti farið hratt og örugglega í verkefni, að þau dagi ekki uppi í innviðafélaginu. Í þriðja lagi er ákveðinn freistnivandi, þ.e. ef það er verið að færa verkefni inn í innviðafélagið skiptir svo miklu máli að við séum bæði að nýta svigrúm og líka að passa að fullfjármagna og gefa í hvað varðar samgönguáætlun því að þar eru svo mörg verkefni sem eru ekki hagkvæm í framkvæmd og skiptir máli að við séum ekki að skilja út undan eða freistast til að skera niður. (Forseti hringir.) Þannig að, virðulegi forseti, það er jákvætt að við séum að horfa á innviðafélag en það skiptir gríðarlega miklu máli að það takist vel til.