innviðafélag.
Virðulegur forseti. Það mætti ætla af umræðum hér um atkvæðagreiðsluna að það sé að vefjast fyrir þingheimi um hvað þetta mál snýst. Það snýst, eins og frægt er orðið, um f-in þrjú; að flýta, fjármagna og framkvæma. Svo einfalt er það. Innviðafélag flýtir verkefnum, fjármagnar þau og framkvæmir þau og bætir þannig við nýrri vídd í samgönguframkvæmdir, innviðaframkvæmdir á næstu árum. Það ætti að vera okkur öllum fagnaðarefni. Við hittumst í fjárlaganefnd og förum yfir það sem fram hefur komið í umræðunni, gerum þær breytingar sem nefndar hafa verið og eru skynsamlegar til að stuðla að sátt um málið. Það á ekki að þurfa að taka langan tíma en er skynsamlegt. Ég ítreka það sem áður hefur verið sagt: Það er enginn veikleiki eða vörn í því að þegar svona stórmál er annars vegar þá þurfum við að vera viðbúin því á næstu árum að það geti þurft að gera einhverjar breytingar á þessari umgjörð. Þannig hefur það verið í Danmörku, þannig hefur það verið í Færeyjum og það er mjög líklegt að það verði líka þannig hér og það er bara allt í lagi. (Forseti hringir.) Við erum að vanda okkur en við þurfum líka að setja fulla ferð í þetta.