innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég gat ekki annað en komið hérna upp og brugðist aðeins við ræðu hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur þar sem hún talar um að þetta muni hafa gríðarleg áhrif á samgöngu- og innviðauppbyggingu um allt land. Það er ekki svo af því að í innviðafélaginu, eins og í fjórðungi hv. þm., Vestfjörðum, verða engin samgöngumannvirki sem munu verða C-félög, sem munu heyra undir það að geta verið í C-félagi. Það eru engin samgöngumannvirki eða uppbygging á Austfjörðum sem geta verið C-félag. Þetta eru þá A3-félög sem þýðir að þau þurfa ríkisábyrgð. Alveg eins og Fljótagöngin þar sem þarf meðgjöf inn í innviðafélagið. Af 21,5 milljörðum sem göngin eiga að kosta þarf meðgjöf frá ríkinu upp á 18,5 milljarða. Þess vegna komast Fljótagöngin ekki strax inn í innviðafélagið, af því að innviðafélagið þarf að vera með C-hlutafélög og C-hluta framkvæmdir, meira en 50%. Það að taka einhverjar framkvæmdir sem eiga að vera úti á landi þótt þær eigi heima inni í innviðafélaginu — ríkið er þá alltaf að setja 85% meðgjöf inn. Þannig er þetta.