innviðafélag.
Forseti. Mér er þetta mál mjög kært. Ég geri mér alveg grein fyrir því að trú fólks á stórfjárfestingum í landinu er takmörkuð vegna þess að okkur hefur ekki tekist að fara í stórar framkvæmdir hingað til. Þess vegna liggur það alveg fyrir að það eina sem mun skipta máli eru verkin sem munu þurfa að tala í þessu máli. Hér hefur lengi verið talað um aðkomu stórra fjárfesta, aðkomu lífeyrissjóða. Það hefur verið vitað mál, herra forseti, að lífeyrissjóðir koma ekki inn nema félag sé til staðar. Hér er verið að svara þeirri þörf. Það liggur líka fyrir að lífeyrissjóðir munu ekki niðurgreiða slík verkefni, eðli málsins samkvæmt, en með því að fara þessa leið þá skapast svigrúm til samfélagslegra verkefna í gegnum verkefni sem eru greidd af ríkissjóði gegnum Vegagerðina. Við höfum farið þessa leið áður. Hún var farin í Hvalfjarðargöngunum á sínum tíma. Það voru aðilar sem mótmæltu því á sínum tíma, sögðu að þeir myndu aldrei keyra göngin, myndu alltaf keyra fjörðinn. Það breyttist sannarlega. Ég geri mér grein fyrir því að það hefur verið takmörkuð trú í gegnum tíðina. Við erum komin af stað, komumst af stað, stígum þessi skref, svo að lokum munu verkin einfaldlega tala.