innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé nú einhvers konar mismæli hjá hæstv. forsætisráðherra að við höfum ekki staðið fyrir stórum verkefnum, hvorki síðustu ár né áratugi. Hlutfallslega höfum við auðvitað staðið fyrir mörgum sinnum stærri verkefnum en við stöndum frammi fyrir núna vegna þess að geta okkar til þess er svo miklu, miklu meiri. En mig langaði bara að spyrja áður en við hefjum þessa atkvæðagreiðslu: Af hverju var ekki horft til fyrirmyndar hennar í Færeyjum? Af hverju er ekki fyrirmyndin frá Danmörku notuð? Af hverju horfðu menn ekki til Noregs, sem er reyndar gallað, þar sem eru tvær vegagerðir? Hér er ríkisstjórnin að búa til þriðju vegagerðina, innviðafélag, sem heyrir ekki undir samgönguráðherra heldur fjármálaráðherra, hefur engin tengsl við Vegagerðina og eftir að það verður samþykkt og stofnað þá verður aðkoma Alþingis engin. Ég spyr: Af hverju þessi nýfrjálshyggjuleið?