157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:57]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég verð að koma hingað upp til að bregðast við orðum hæstv. forsætisráðherra. Í fyrsta lagi er ég sammála því að við skulum endilega reyna að klára þetta með sóma þannig að við komumst af stað, en lífeyrissjóðir hafa bent á að þeir vilji ekki koma að málum nema hver framkvæmd verði í sérfélagi. Það er ekki planið miðað við hvernig þetta er sett upp núna. Einnig hljótum við að vilja stuðla að því að við fáum, samhliða þessu innviðafélagi, erlenda fjárfestingu inn í landið og þekkingu með þeirri fjárfestingu. Við gætum þurft að gera það með lagabreytingu til að ýta undir það en þessir erlendu aðilar munu fyrst og fremst vilja að um verkefnin verði pólitísk sátt og samstaða. Ég ítreka því: Reynum að hafa breiðari samstöðu og koma því í gegn milli 2. og 3. umræðu að við getum gert þetta svo sómi sé að saman.