innviðafélag.
Virðulegur forseti. Hér er um að ræða breytingartillögu þar sem komið er á móts við bílaleigur í landinu sérstaklega. Við höfum reynslu af því hvernig það hefur verið að bílaleigur eigi að vera innheimtumaður ríkissjóðs fyrir kílómetragjöld. Það hefur gengið upp og ofan. Hér höfum við tækifæri til þess að koma á móts við þessa atvinnugrein með því að gera það að verkum að sá sem er umráðamaður eða leigjandi að ökutækinu borgi gjöldin en ekki eigandi ökutækisins. Þannig að ég hvet ykkur, hv. þingmenn, til að greiða þessu atkvæði, mér sýnist það nú ekki ætla að ganga eftir. (Gripið fram í: Jú. )En ég átta mig á því hins vegar að það er búið að boða að þetta verði tekið fyrir í nefndinni og ég vona að nefndin taki þetta fyrir og geri ekki stórkostlegar breytingar á þessari breytingartillögu minni og geti þá í staðinn gert hana að sinni og komið með þessa góðu tillögu hér aftur.