innviðafélag.
Virðulegi forseti. Líkt og ég kom inn á í ræðu minni í umræðu um þetta mál þá styð ég hugmyndina á bak við þessa breytingartillögu og skil hvaðan hv. þingmaður er að koma. Aftur á móti höfum við í meiri hluta fjárlaganefndar skoðað þessa breytingartillögu og teljum hana ganga of langt en munum, eins og hv. þingmaður kom sjálfur inn á, skoða þetta milli 2. og 3. umræðu og vonandi finnum við einhverja góða lendingu til að koma til móts við þau sjónarmið sem er svo sannarlega vert að gera eins og hv. þingmaður leggur til í sinni breytingartillögu. Þetta verður skoðað milli 2. og 3. umræðu.