fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir fyrirtaksandsvar og réttmætar og góðar ábendingar. Allt rétt sem hv. þingmaður segir. Þetta eru ábendingar sem fjármálaráð kom með. Fjármálaráð kom inn í fjárlaganefnd, fór yfir þetta og lýsti áhyggjum sínum af öllum þeim þáttum sem hv. þingmaður var að benda á. Hvað var gert? Ekkert. Og til að bæta gráu ofan á svart, virðulegur forseti, þá kom ný þjóðhagsspá Seðlabankans sem málaði þetta enn dekkri litum og það var ekki eins og það væru ekki nógu dökkir litir sem fjármálaráð var að mála fjármálaáætlunina upp með. Nei, það kemur ný spá Seðlabankans sem segir það í grundvallaratriðum að meginforsendur fjárlagafrumvarpsins séu gjörbreyttar eða brostnar.
Það er bara eðlileg krafa þingsins að lykilplagg eins og fjármálaáætlun sé uppfærð og að hún sé rétt. Það er ábyrgðarhluti að senda frá sér gögn, skýrslur, fjármálaáætlun, vísvitandi að það sem í henni stendur er ekki rétt. Það er stórundarlegt. Það er stórundarlegt, virðulegur forseti, að skrifa það inn í nefndarálitið: Jú, við vitum reyndar að tölurnar eru ekki réttar. Við vitum að atvinnuleysið er hærra. Við vitum að verðbólgan verður hærri. Við vitum að vextirnir verða hærri. Við vitum að hagvöxturinn er að lækka, ekki um 0,1%, úr 2,2% í 1,8%. Þetta er gríðarlegur munur, virðulegur forseti. En hvað gera menn? Ekkert. Við erum með hallalaus fjárlög, er sagt.