157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:45]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er einmitt þetta sem veldur mér, og ég heyri að við erum sammála um það, verulegum áhyggjum. Hér er ekki bara um einhverja flokkspólitík að ræða, stjórn/stjórnarandstaða. Eins og hv. þingmaður kom inn á er fjármálaáætlun lykilplagg. Lög um opinber fjármál, ég hef haldið margar ræður um þau og sitt kann hverjum að sýnast um það — en ég er algerlega sannfærð um það að þau hafi fært ríkisreksturinn til betri vegar, þau hafi lyft upp starfi Alþingis, fjárlaganefndar, hér á síðustu árum hvað það varðar hvernig við nálgumst ríkisfjármál. Að vera með skýra stefnu um það hvað ríkisstjórnin sér fyrir sér á kjörtímabilinu, að koma með áætlun á hverju ári. Þar þurfa málaflokkarnir, rammarnir, að vera ljósir. Það þurfa að vera markmið. Þau þurfa að vera tímasett, fjármunum úthlutað á þau og það þarf að vera skýr ábyrgðarlína. Þetta er reyndar, virðulegur forseti, það sem hefur skort í fjármálaáætlanir sem lagðar hafa verið fram af þessari ríkisstjórn og við höfum staðið hér og haldið langar tölur um það. Ég vænti samt mikils af því samkomulagi sem var gert hér þegar þessi fjármálaáætlun var lögð fram um að það horfi til betri vegar næst.

En núna, virðulegur forseti, stöndum við frammi fyrir því að við erum hér með fjármálaáætlun þar sem forsendur eru brostnar. Það er tekið undir það. Þá kann maður að spyrja sig: Hvað á að gera í því? Það er ljóst af nefndaráliti meiri hlutans að meiri hlutinn hyggst ekki gera neitt í því. Ég sé að hv. þingmaður leggur til í sínu nefndaráliti að þessu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Sjálf hef ég talað fyrir því að við eigum bara að fresta þessari umræðu því að það er ekki hægt að taka þessa umræðu lengra með þeirri stöðu sem upp er komin og við getum bara rætt þetta hér á stubbi í haust.

En spurning mín til hv. þingmanns er, vegna þess að ríkisstjórnin heldur áfram með það markmið sitt að vera með hallalaus fjárlög á næsta ári, sem er gott og gilt markmið: Hvernig heldur hv. þingmaður að hægt sé að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp? Er einhver önnur leið til þess en það sem ég kalla skattahækkun? Þessi ríkisstjórn hefur reyndar fundið það orðalag að segja „hagræðing á tekjuhliðinni“.