fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir gott andsvar um hagræðingu á tekjuhliðinni. Já, það má kalla hlutina ýmsum nöfnum. Við vitum hvað hagræðing á tekjuhliðinni þýðir. Hv. þingmaður spyr hér: Hvernig ætlum við að ná hallalausum fjárlögum 2027? Ég get bara sagt að ég hef áhyggjur af því vegna þess að ég geri mér alveg grein fyrir því hvað er mikilvægt að við séum hér með hallalaus fjárlög. En ég er ósammála hæstv. forsætisráðherra þegar hún kom hér í ræðustól í óundirbúnum fyrirspurnatíma, ef ég man rétt, og sagði að hér myndu hallalaus fjárlög nást, sama hvað það kostaði. Þessi orð urðu til þess að sá sem hér stendur, ja, fékk pínu kvíðahnút í magann yfir því hvað er í vændum í haust. Þar deili ég ekki skoðun hæstv. forsætisráðherra, að við ætlum hér í raun og veru að ná hallalausum fjárlögum sama hvað það kostar. Miðað við stöðuna eins og hún er í dag, ef maður horfir á bæði gagnrýni fjármálaráðs og nýja spá Seðlabankans, þá er alveg ljóst að tekjuhliðin er að veikjast. Við erum að veikja tekjuhliðina. Bæði erum við að draga úr framleiðni, hagvöxturinn er að minnka, atvinnuleysið er að aukast þannig að ég held að hæstv. ríkisstjórn verði í erfiðleikum tekjuhliðarmegin. Þá er ekkert eftir nema að fara í skattahækkanir á fólk og fyrirtæki sem ég óttast að verði verkefni okkar hér í haust.