fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. framsögumanni 2. minni hluta fyrir hans framsögu hér með sínu nefndaráliti sem er mjög ítarlegt og greinargott. Í nefndarálitinu má finna margar töflur um útreikninga. Mér segir svo hugur að sumt af því sem þar er hefði meiri hluti fjárlaganefndar getað tekið og notað til að uppfæra fjármálaáætlun. En vandamálið er auðvitað það að meiri hlutinn er í vandræðum með hvernig þeir ætla að stoppa í það gat. Þau gætu ekki komið hér og sagt: Ókei, það verður hérna 10, 15 eða 20 millj. kr. halli á næsta ári, eins og útlitið bendir til, og við ætlum ekkert að gera í því að svo stöddu, sem hefði svo sem verið ásættanleg niðurstaða. En þau geta ekki komið hér og sagt okkur berum orðum að þau séu búin að gefast upp á því að reka ríkið hallalaust á næsta ári. Þau neita að yfirgefa það markmið, jafnvel þótt allar forsendur bendi til annars. Í nefndaráliti hv. þingmanns er mjög gaumgæfilega farið yfir þetta, mjög nákvæmlega, nánast krónu fyrir krónu.
Ég ætla að spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi: Hver telur hv. þingmaður að hallinn á fjárlögum verði á næsta ári að öllu óbreyttu, miðað við þá útreikninga, miðað við þær forsendur sem nú eru komnar? Hver verður halli ríkissjóðs á næsta ári ef ekkert verður að gert?
Í öðru lagi: Hversu fallin er stöðugleikaregla ríkisstjórnarinnar að óbreyttum þessum forsendum sem er að finna í nefndarálitinu?