157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:52]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir prýðisgott andsvar. Hver er hallinn? Eins og hv. þingmaður kom inn á þá eru nú ansi greinargóðar töflur í nefndarálitinu og við erum að reyna að ramma inn þá sviðsmynd sem okkur sýnist vera að teiknast upp varðandi stöðuna í efnahagsmálum og varðandi raunstöðuna í fjármálaáætlun. Í raun og veru erum við að byggja okkar útreikninga að stóru leyti á nýrri spá Seðlabankans og því sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans þar sem þau viðurkenna og tala um breyttar forsendur, m.a. varðandi minni sparnað vegna atvinnuleysistrygginga og hærri útgjöld vegna atvinnuleysis, lægri hagvöxt, minni skatttekjur og áætlaða afkomu ef við tökum verðbólguna inn í það allt saman. Auðvitað er þetta áætlun, virðulegur forseti, en mér sýnist að miðað við þetta og miðað við þessa útreikninga séum við að tala um einhvers staðar í kringum mínus 16–22 milljarða, í mínus. Og svo breytir það auðvitað fjármálaáætlun til 2031 ef þú ert með spá í fjármálaáætlun um hagvöxt um 2,2% en er núna 1,1%. 2028 á hún að vera 2,4% samkvæmt fjármálaáætlun en 2,2% í Seðlabankanum. Atvinnuleysið á að vera á næsta ári 4,3% í fjármálaáætlun en er spáð 5% í Seðlabankanum. Verðbólgan: 2,7% í fjármálaáætlun en 3,6% í Seðlabankanum. Auðvitað breyta þessar tölur algerlega leiknum og það er ábyrgðarleysi að taka ekki tillit til þeirra.