fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar. Í lögum um opinber fjármál er ýmiss konar orðalag ef einhverjar breytingar verða sem eiga að veita stjórnvöldum einhverja leiðsögn í gerð áætlana og stefnu, eins og t.d. orðalagið: „Reynist hagþróun og efnahagsforsendur fyrir áætlanagerð víkja í teljandi mæli frá …“ og orðalagið: „Mat á frávikum frá upprunalegum efnahagsforsendum …“, ýmislegt svona sem skyldar stjórnvöld til að meta þetta svolítið. En í 8. gr. segir þó, með leyfi herra forseta: „Stefnumörkun í opinberum fjármálum skal byggjast á traustum forsendum og gögnum, sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið, og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám þar sem tekið er mið af fjárhagslegum og efnahagslegum áhrifum af áformum stjórnvalda.“
Allt þetta leiðir mann að spurningunni: Ef stjórnvöld vilja ekki hlusta á þetta og hunsa þetta, eins og þarna virðist vera að gerast — við erum nú báðir með starfsferil að baki í lögreglunni og alltaf þegar maður var að kíkja á lög og hugsanleg lögbrot þá fór maður aftast í lögin til að athuga hvar refsingakaflinn væri en í opinberum fjármálum er hann ekki að finna. Það eru engar afleiðingar. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann: Hverjar eru afleiðingarnar aðrar en þær að almenningur og þingið fær raunverulega ekki viðbrögð stjórnvalda vegna þess að þau hunsa öll merki og allar leiðbeiningar úr lögunum? Afleiðingarnar eru þær að menn eru að vinna blindandi eftir einhverju. Alveg eins og ég nefndi hér fyrr í dag, að menn fara út á sjó með hálfan tank af olíu og uppgötva það þegar þeir eru komnir út á miðin að þeir komast ekki til baka vegna þess að þeir gerðu ekki ráð fyrir því (Forseti hringir.) að fylla tankinn. Þetta er bara sama hér. Menn stefna í stórkostlegan halla á fjárlögum, brjóta stöðugleikaregluna en menn hunsa það. Afleiðingarnar eru auðvitað óróleiki (Forseti hringir.) óánægja, ófyrirsjáanleiki, ógagnsæi og allt það sem þau tala svo fjálglega um sjálf að eigi að vera svo áferðarfallegt og fínt.