fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðari spurninguna. Ég gleymdi að segja í mínu fyrra andsvari, af því hv. þingmaður var að spyrja hér um stöðugleikaregluna, að hún er náttúrlega inni í fjárlögunum og við munum hvernig það endaði síðast. Ef ég man lokatöluna rétt þá held ég að það hafi verið 8 milljónir og ég held að við höfum svona grun um að stöðugleikareglan sé fyrir löngu farin. En gott og blessað. Stóra spurningin hjá hv. þingmanni er góð: Hver er refsiramminn? Ég ætla ekki að leggja það til að við setjum það inn í lögin að það verði refsirammi. En hvað gerist, spyr hv. þingmaður? Hvað gerist ef þetta er brot? Það sem gerist er náttúrlega það að þetta er trúverðugleikamál, þetta er ásýndarmál og þetta er spurning um traust. Ef þeir sem eru að skoða hér fjármálaáætlun verða þess áskynja að við erum ekki að uppfylla lögin eins og þau voru hugsuð, því að lögin voru alveg klárlega hugsuð með þeim hætti að það ættu að vera réttar tölur í fjármálaáætlun, þá minnkar náttúrlega traust markaðarins, verkalýðsfélaga, atvinnurekenda og almennings á stjórnvöldum. Það er það sem gerist. Í því felst refsiramminn, ef ég má segja sem svo. Refsingin fyrir ríkisstjórnina, að leggja fram fjárlagafrumvarp, óuppfært með röngum tölum, verður til þess að almenningur, fyrirtæki, verkalýðsfélög og fleiri missa trú á stjórnvöldum. Þau missa trú á því að stjórnvöld geti í alvörunni leyst þetta verkefni sem þau voru kosin til þess að leysa, sem er að ná tökum á efnahagsástandinu á Íslandi. Þessi framlagning er ekki skref í rétta átt í þeirri vegferð.