157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:21]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hlustaði á hana alla. Það sem kom mér á óvart, og hefur komið mér á óvart í meirihlutaálitinu og hjá hv. stjórnarliðum, er að þeir víkja ekki einu orði að álitsgerð fjármálaráðs, ekki einu orði. Nú erum við með fjármálaráð sem var sett á laggirnar þegar við ákváðum að breyta lögum um opinber fjármál og þá kom fjármálaáætlun og það allt saman. Hv. þingmaður talaði um það í ræðu sinni að það væri mikilvægt að það væri traust áætlanagerð og ýmislegt svoleiðis, sem hljómar allt saman vel. En hér kemur fjármálaráð með 15 mjög alvarlegar athugasemdir. Það er ekki brugðist við neinni þeirra, ekki einni. Lítur meiri hlutinn svo á að fjármálaráð sé bara eitthvað sem skiptir engu máli? Les meiri hlutinn álitsgerð fjármálaráðs? Hafið þið kynnt ykkur álitsgerðina? Ég spyr vegna þess að þið víkið ekki að því einu orði, ekki einu. Þið eruð búin að segja það og hafið skrifað það út að forsendur hafi brugðist og breyst og þið ætlið ekkert að gera með það. Allt í góðu, eða það er auðvitað ekkert allt í góðu en ég ætla alla vega ekki að tala um það núna. En er hugmynd meiri hlutans kannski að leggja niður fjármálaráð? Því að ef menn nota það ekki neitt, sem er ekki gert — þetta er einhver kostnaður. En spurningin er þessi: Af hverju er ekki vikið einu orði að fjármálaráði og af hverju er ekki reynt að koma til móts við þessar ábendingar (Forseti hringir.) og/eða að útskýra ef þeir hafa rangt fyrir sér? Ég spyr að því, virðulegur forseti.