fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir fyrirspurnina. Fjármálaráð er mikilvægt. Álitsgerðin var góð. Fundir fjárlaganefndar með fjármálaráði voru sömuleiðis góðir. Þetta er ágætisábending, að fjalla skipulega um ábendingar fjármálaráðs. Ég hygg að við höfum gert það í fyrra, gerum það ekki nú. Það er ekki vegna þess að við höfum ekki tekið þær til okkar eða slíkt. Við unnum svo sem með þær en hugsanlega hefðum við átt að fjalla skipulega um þær í nefndarálitinu, það er ágætisábending. Ég velti fyrir mér hvort það séu einhverjar sérstakar ábendingar sem þingmaðurinn hefur í huga sem hann hefði talið að þurft hefði að fjalla sérstaklega um í álitinu.