fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr hvort það séu einhverjar sérstakar ábendingar. Þær eru 15. Í grófum dráttum segja þær bara: Þetta er allt of bjartsýnt, það er ekkert útfært. Fjármálaráð gagnrýnir stöðugleikaregluna, að hún sé ógagnsæ, það sé ekki hægt að fylgjast með henni, af því að hv. þingmaður vísar til hennar. Fjármálaráð fer sérstaklega yfir að vísitölutengingin sé mjög hættuleg og að það sé ekki verið að lækka skuldir. Lánsfjárjöfnuður sýni það. Það sé ekkert gert til að slá á verðbólgu, ekkert útskýrt með framlögin eða hvernig menn ætli að ná nálgast það. Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir dragi úr trúverðugleika o.s.frv. Það er farið sérstaklega yfir það sem snýr að innviðafélaginu, að þar séu ákveðnir hlutir sem menn þurfi að líta til varðandi freistnivanda og áhættu. Það er ekkert fjallað um það í umfjöllun um innviðafélagið. Það sé mjög varhugavert að treysta á hagfelldar efnahagsforsendur og ýmislegt sem er mjög ótrúverðugt í þessu. Nú er komið í ljós að þetta er strax farið að bíta, þ.e. hagvöxturinn er minni samkvæmt nýrri spá. Atvinnuleysi er hærra og það sem menn ætluðu að fara í til að spara hefur ekki gengið eftir. Ég verð að viðurkenna, virðulegur forseti, að þó að svar hv. þingmanns hafi kannski verið taktískt þá er ég bara ekki alveg að kaupa þetta. Hvernig má það vera þegar þið eruð með þessa álitsgerð? Hvernig má það vera? Þið hljótið að hafa talað um hana. Þið hljótið að hafa sagt: Heyrðu, hvernig eigum við að nálgast þetta? Þetta er alvörumál. (Forseti hringir.) Þetta eru efnahagsmálin. Þetta eru ríkisfjármálin og það er bara ekkert einasta aukatekið orð um þetta. (Forseti hringir.) Að það sé ekki brugðist við því með nokkrum einasta hætti — það dugar ekki að segja bara að fjármálaráð sé mikilvægt ef menn fara ekki eftir einu eða neinu sem fjármálaráð segir.