157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:27]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta annað andsvar. Ég held að þessi yfirferð þingmannsins hafi borið með sér að býsna margt hefur verið fjallað um bæði í vinnu fjárlaganefndar og í nefndarálitinu. Það hefur verið skerpt á því hver ábyrgð ráðuneytanna er varðandi það að ná hagræðingu. Það er alveg skýrt að ráðuneytin eiga að gera það innan síns ramma og því hefur verið fylgt býsna vel eftir, eins og við höfum orðið áskynja þegar við höfum verið að sinna eftirliti með fjárlögum. Ég minni bara á það að fjármálaráð fagnaði hugmyndum um innviðafélag í upphafi en var síðan með almenn varnaðarorð sem var auðvitað horft til þegar innviðafélagið var útfært. Ég held því að við höfum notið góðs af ábendingum fjármálaráðs þrátt fyrir allt. En ábendingin er ágæt, að við hefðum getað fjallað kerfisbundið um ábendingar fjármálaráðs í nefndaráliti. (GÞÞ: Í alvöru?)