157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirtaksræðu. Mig langar í mínu fyrra andsvari að ræða forsendurnar. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur lesið álit 2. minni hluta fjárlaganefndar. Ef ekki þá hvet ég hv. þingmann til að gera það, já, ég sé að hann er alla vega með það, sem er gott. Á bls. 2, virðulegur forseti, erum við búin að áætla og reikna út breytingar á forsendum miðað við það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans. Mig langar einfaldlega að heyra frá hv. þingmanni hvaða skoðun hann hafi á þessum útreikningum, hvort hann telji að þeir séu ekki nokkuð réttir og hvort meiri hluti hv. fjárlaganefndar hafi ekki farið og látið gera sambærilega útreikninga sem þeir hljóta nú að hafa gert. Ég trúi ekki öðru en að meiri hlutinn hafi farið í þá vinnu að reyna að meta breytingarnar til þess að sjá hvort þær væru verulegar eða óverulegar og hvort tölurnar sem hv. þingmaður og meiri hluti nefndarinnar er með passi við þær tölur sem eru í nefndaráliti 2. minni hluta.