157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:30]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta andsvar og þakka fyrir þá góðu vinnu sem 2. minni hluti hefur lagt í sitt nefndarálit þar sem dregnar eru fram áætlanir eða spár, reynt að draga tölulegar ályktanir af því sem virðist vera að birtast í spám. Ég ætla hvorki að rengja né staðfesta tölurnar. Til þess hef ég ekki forsendur. Það mun taka fjármálaráðuneytið lengri tíma að vinna með þær forsendur sem breyttust í nýrri spá Seðlabankans, en niðurstaðan mun þó liggja fyrir á góðum tíma fyrir lokasprett undirbúnings fjárlaga.

Ég tók eftir því að öll fjárlaganefnd fékk í vikunni sendar uppfærðar tölur um tekjur á árinu 2025 sem skeikaði um 57 milljarða í plús og endurspegla að manni finnst bara svolítið mikið flug á svona tölum jafnvel ári síðar. Stundum er umræðan hér í þingsal bara miðuð við annan aukastaf í einhverju á meðan veruleikinn er sá að þessar áætlanir eru með breiðari strokum en nákvæmlega það. Þó að módelin sýni þetta niður á milljón eða tvær þá þurfum við einhvern veginn að reyna að ræða og hafa augun á heildarmyndinni í þessu. Ég hygg að í núverandi stöðu muni tölurnar bæði breytast á útgjaldahliðinni en líka á tekjuhliðinni, samanber þessar nýju tölur varðandi 2025 því að ef það er grunnurinn sem þetta ár byggði á þá getur það líka haft bein og óbein áhrif á tekjurnar á þessu ári, (Forseti hringir.) jafnvel þó að spárnar séu eitthvað að breytast.