fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er alveg rétt að við höfum fengið þær upplýsingar í fjárlaganefnd að það muni taka ráðuneytið einhvern tíma að uppfæra tölurnar. Það er hins vegar þannig að þetta er ekki flókinn útreikningur þannig lagað séð og þetta tókst okkur í 2. minni hluta að gera á ekki löngum tíma eða frá því að nefndarálitið var birt og þar til við lögðum okkar álit fram. Mér finnst sérstakt ef það er þannig að meiri hluti fjárlaganefndar hefur ekki gert atlögu að því að reyna að átta sig á stærðargráðunni sem þessar breytingar hafa haft fyrir fjármálaáætlun. Ég verð að segja það þó að ég geri mér grein fyrir því að menn vilja ekki uppfæra áætlunina, en einhvern veginn að reyna ekki að setja vinnu af stað. Ég veit að það eru mjög færir starfsmenn fjárlaganefndar sem hefðu leikið sér að því að finna þessar sömu tölur og við erum með hér út eða sambærilegar, sérstaklega í ljósi þess sem hv. formaður fjárlaganefndar hefur nú verið að tala um, að breytingarnar séu svo litlar að það taki því ekki að breyta áætluninni. Það er sérstakt hvernig menn geta fullyrt svoleiðis ef menn hafa ekki reiknað tölurnar.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann að í síðara andsvari er spurning sem ég hef verið að spyrja m.a. fyrrverandi og núverandi fjárlaganefndarmenn að, og meira að segja leitað eftir hagfræðilegum skýringum og ekki fengið nein svör. Þetta er pínulítið á svipuðum nótum og fjármálaráð er að benda á er varðar ofáætlaðar eða bjartsýnar tekjuspár, þ.e. hvernig framleiðnivöxturinn getur verið á uppleið en hagvöxtur á niðurleið. Menn eru að spá auknum framleiðnivexti í samfélaginu á sama tíma og við sjáum hagvöxtinn fara niður. Hvernig er þetta hægt?