157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:34]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta andsvar. Það er ágætisspurning hvernig þessar stærðir sveiflast og hvort eitt útiloki annað. Framleiðni byggir auðvitað m.a. á íbúatölum, þ.e. hve margir eru starfandi. Það hefur bara verið ærið verkefni að reyna að henda reiður á því. Þjóðskrá og Hagstofan eru ekki einu sinni með sömu tölur varðandi fjölda landsmanna. Ef við erum að leita að einhverjum traustum grunni þá held ég að það þurfi að horfa á mjög margt í þessu mælaborði, hvernig það hangir saman og hvernig það hefur reynst í að spá fyrir um þessar hagstærðir. Síðast í blöðunum í morgun frekar en í gær var verið að draga það fram að bara breytingar á álverði myndu líklega skila álverunum auknum tekjum upp á 70–110 milljarða og orkufyrirtækjunum miklum búhnykk líka vegna þess að mjög mikið af orkuverðinu er tengt við álverð. Það geta alls konar stærðir sveiflast, jafnvel þó að grunnforsendan sé staðan í Íran-stríðinu eða annað slíkt. Sumt hefur neikvæð áhrif, önnur jákvæð. Ég tek t.d. eftir því í mati 2. minni hluta, sem ég ætla ekki að gagnrýna, tek það fram, að ekki er reiknað með neinum auknum tekjum vegna þess að verðbólgan er að reiknast hærri en áður, en við vitum að verðbólgan hefur tekjuaukandi áhrif í gegnum virðisaukaskattinn. Jafnvel þó að okkur sé ekki vel við verðbólgu þá vitum við að það skilar sér í ríkiskassann þó að það skili sér ekki til sveitarfélaga. Ég held því að það verði að fá þessa heildarmynd áður en við getum farið að fullyrða um hverjar nákvæmar afleiðingar eru sitt hvorum megin við núllið.