157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:37]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Áður en ég hef mál mitt um fjármálaáætlun þá er kannski rétt að blanda sér aðeins inn í þá umræðu sem var hér í síðasta andsvari fyrir þá sem eru að hlusta, svo það sé nú samhengi í hlutunum. Það er alveg rétt að verðbólga eykur tekjur ríkissjóðs en þegar hún er búin að vera viðvarandi svo lengi sem hún hefur verið þá eykur hún líka gjöldin. Það er í raun og veru bara á fyrsta ári sem menn geta vænst þess að fá verulegan tekjuauka umfram útgjöld. Eftir það hækkar nú hvort tveggja. Ekki trúi ég því að menn búist við því að laun hækki svakalega á næstu mánuðum miðað við stöðuna.

Hér var líka rætt um hvernig það gæti verið að framleiðnivöxtur færi vaxandi um leið og hagvöxtur færi minnkandi. Þá segir það sig nokkuð sjálft, það þýðir væntanlega að það eru færri vinnandi, það er meira atvinnuleysi, það er minni vinnuþátttaka. Hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnin hefur farið mikinn í því að tala um að hér sé enginn hagvöxtur á mann og það sé vegna þess að framleiðni sé svo lág og hafa máli sínu til stuðnings tekið síðustu ár en mér er til efs að nokkur hafi tekið það inn í reikninginn að eftir Covid, sem eru auðvitað mjög óeðlileg ár, á árunum 2022 og 2023, fjölgaði hér fólki sem sótti um alþjóðlega vernd um 5.000, 6.000 eða 7.000 manns jafnvel, á þessum tveimur árum, 8.000 kannski, og það hefur augljóslega áhrif á framleiðni. Þetta er það stór tala umfram það sem venjulega hafði verið.

En, frú forseti, ég ætlaði að tala um fjármálaáætlun. Það er tvennt sem vakti kannski meginathygli mína í því sem kemur frá meiri hlutanum. Það er annars vegar að þrátt fyrir að meiri hlutinn viðurkenni að forsendur séu gjörbreyttar þá standi ekki til að taka þær breyttu forsendur inn í vinnu fjárlaganefndar, vinnu meiri hlutans, við þessa útfærslu. Frá því að lög um opinber fjármál — og þetta kemur fram í áliti 2. minni hluta fjárlaganefndar, sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson fór ágætlega yfir hér áðan — tóku gildi fyrir meira en tíu árum hefur það aldrei gerst að meiri hluti fjárlaganefndar viðurkenni og raunar staðfesti breyttar forsendur en telji ekki tilefni til að uppfæra afkomumarkmið. Þetta sama heyrðist hér frá formanni fjárlaganefndar, sama heyrðist frá hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra hér í óundirbúnum fyrirspurnum fyrir nokkrum dögum. Þetta hefur vakið athygli mína. Bæði hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra héldu því fram að það hefði verið kynnt sérstaklega að þetta stæði ekki til, hér væri breytt verklag. Ég verð að viðurkenna að það fór fram hjá mér og ég varð dálítið undrandi.

Hitt atriðið sem mér fannst vera alveg sérstakt er að í áliti meiri hlutans er ekkert gert með gagnrýni fjármálaráðs, þar sem eru 15 alvarlegar athugasemdir. Í upphafi, þegar fjármálaráð er sett á laggirnar og í gegnum þessi ár, tíu ára sögu um opinber fjármál, þá hefur þróunin verið sú að það er stöðugt verið að reyna að styrkja stöðu fjármálaráðs. Fyrirmyndirnar eru til að mynda erlendis frá. Ef ég nefni Danmörku sem dæmi — svo ég noti nú hér dönskuslettu, með leyfi forseta, ég skal þýða alveg um leið — þá var þar sambærilegt ráð til sem kallað var „vismændene“ eða gáfumennirnir, eða gáfufólkið, og þegar það voru deilur um einhverja hluti var málunum skotið til þessa hóps, eins konar fjármálaráðs, gjarnan þegar menn lögðu fram einhverjar stórkostlegar efnahagslegar tillögur eða eitthvað svona eins og það sem hér er undir, fjármálaáætlun. Þegar þeir höfðu komist að niðurstöðu þá var það niðurstaðan, umræðan var búin og þeir voru ekki gagnrýndir. En það sem hér er gert, og hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi að þetta væru ágætar ábendingar — þetta eru miklu meira en ágætar ábendingar. Þetta er fjármálaráð sem segir að þetta verði að laga og þegar hv. þingmaður nefndi það líka að meiri hlutinn og fjárlaganefnd hefðu notið góðs af þeim þá er það auðvitað ekki nóg þegar það er ekki bara sérstakur kafli sem fjallar um þessar ábendingar, þetta eru alvarlegar ábendingar, frú forseti. Þetta eru ályktanir og ábendingar þar sem fjallað er um að það sé ekki hvikað frá markmiði um hallalaus fjárlög og bent á að það sé fagnaðarefni en ítrekað að til að ná þessu markmiði þurfi að sýna aga í hagstjórn, auk þess sem ýmsar efnahagslegar forsendur þurfi að ganga eftir. Þegar menn vilja ekki uppfæra hinar efnahagslegu forsendur þá verður kannski lítið gagn að þessu.

Þeir gagnrýna sérstaklega vísitölutengingu almannatrygginga sem ógni sjálfbærni opinberra fjármála og benda á að vísitölutenging almannatrygginga kalli á endurskoðun útgjaldahámarks í stöðugleikareglunni. Það var ekki gert. Það hefði meiri hlutinn getað gert sem viðbragð við ábendingu fjármálaráðs og það gagnrýnir reyndar ógagnsæi stöðugleikareglunnar og síðan finnst ráðinu of margt óljóst og óútfært varðandi hagræðingaraðgerðirnar og afkomubætandi aðgerðirnar. Við höfum nú bent á það í minni hlutanum að þær sjáist eiginlega hvergi. Þegar þær koma, eins og til að mynda stytting bótatímabilsins, þá er búið að breyta þeim í þinginu, sem gerir það að verkum að það sem átti að vera 6,5 milljarðar eftir tvö ár, ef ég man rétt, í afkomubætandi þáttinn, lækkar um 3,7 milljarða inn í framtíðina. Það hefur auðvitað áhrif, þetta eru tölur, þó að ég sé alveg sammála hv. þm. Degi B. Eggertssyni um að okkur hefur ekki gengið gríðarlega vel að spá hér um tekjur. Það er áhugavert ef tekjur ársins 2025 hafa aukist, eða niðurstaðan, um 57 milljarða. Þá fer staðan að verða býsna góð hvað það varðar í samanburði við árið 2026. (GÞÞ: 83.) Já.

Það sem mér finnst vera alvarlegt við það tvennt sem ég hef nefnt hér í innganginum er þegar það er engin uppfærsla á forsendunum og menn viðurkenna að hér séu bara alls konar breytingar. Þær hafa orðið til í þinginu og það hafa komið fram þjóðhagsspár sem gera það að verkum að menn segja bara: Já, þetta er svona, en við ætlum ekki að uppfæra þetta neitt. Þá eru skilaboðin sem meiri hlutinn og ríkisstjórnin er að senda frá sér þau að trúverðugleiki fjármálaáætlunarinnar sé ekki nægilega traustur. Sama fannst mér, svo ég segi það nú, þegar ríkisstjórnin brást ekki við því í fyrrasumar að laun okkar hækkuðu mjög mikið — það er verið að bregðast við því núna — þegar menn voru að reyna að slá niður verðbólguna, þegar menn komu fram með fjárlög þar sem þeir hækkuðu krónutölurnar allar um verðbólguspána, 3,7%; hún er reyndar talsvert hærri. Menn sögðu ekki: Við ætlum að ná niður verðbólgunni, við ætlum að gera það með hallalausum fjárlögum 2027 og við ætlum að taka á okkur 1,2 milljarða með því að hafa hækkunina 2,5% af því að það er það markmið sem við ætlum að ná. Þá voru skilaboðin send: Við höfum ekki alveg trú á þessu.

Þegar síðan fjárlögin birtust og útgjöldin voru aukin um 143 milljarða, 9% aukning á milli ára, þá held ég að trúverðugleikinn hafi verið farinn. Hann fór reyndar fyrr vegna þess að verðbólguvæntingarnar risu þarna á vordögum. Kannski var það út af umræðunni um vísitölutryggingu bóta sem þá var komin fram, þó að því hafi seinkað; varð að lögum síðastliðið haust eða núna í vetur. Markaðurinn missti trúna og vaxtalækkunarferli Seðlabankans hætti, sem hafði farið af stað með einhverjar tvær lækkanir á síðasta kjörtímabili. Núna erum við, eins og við þekkjum, komin í umtalsverða hækkun. Við erum komin í 5% verðbólgu allt þetta ár, held ég, hvern einasta mánuð nema kannski einn þar sem hún var 4,8% eða 4,9% en alveg upp í 5,3%. En það sem er verra er að atvinnuleysi hefur vaxið og það er kannski skýringin á því að framleiðniaukningin per mann getur vaxið en hagvöxturinn minnkað, af því að það eru einfaldlega færri vinnandi tímar á bak við það, gæti ég ímyndað mér.

Stóra myndin er sú að mér finnst ríkisstjórnin og meiri hlutinn draga úr trúverðugleika þessarar áætlunar og gera það að verkum að það sé erfiðara að ná tökum á verðbólgunni og vöxtunum, sem er langsamlega stærsta og mikilvægasta aðgerðin fyrir heimilin í landinu og fyrir fyrirtækin en líka fyrir sveitarsjóðina og ríkissjóð. Þess vegna er áhugavert að bera saman þá stefnu sem núverandi ríkisstjórn, undir forystu jafnaðarmannaflokks Íslands, er með og stefnu nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku, sem er þá undir yfirstjórn systurflokks Samfylkingarinnar, sósíaldemókratanna í Danmörku. Hvað er ný ríkisstjórn í Danmörku að gera til að horfa til þess að örva atvinnulífið? Jú, hún ætlar að lækka skatta á atvinnulífið til þess að örva atvinnulífið, auka hagvöxt, vaxa og um leið að styrkja fjárhag heimila. Þeir gera það m.a. með því að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Þetta er sú þjóð sem hefur verið hvað hörðust í því að vera bara með eitt þrep á alla hluti. Það á að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Það sama er að gerast í Svíþjóð. Svíar eru reyndar að gera það tímabundið, lækka virðisaukaskatt á matvæli úr 12% í 6% í ár og út árið 2027 til þess að koma til móts við tekjulág heimili. Þar er reyndar hægri stjórn. Það er ekki jafnaðarmannastjórn þar. Í Frakklandi, á Spáni og Ítalíu er virðisaukaskattur á matvæli um 4–5%. Hann er 0% á Írlandi. OECD hefur bent á að á Íslandi sé hann hlutfallslega hærri en í samanburðarlöndunum. Hér hefur verið talað um að það sé dýrtíð og þörf á að slá niður verðbólgu og um leið að koma til móts við tekjulægri heimili þar sem matarútgjöldin eru hærra hlutfall. Ég hefði haldið að jafnaðarmannastjórn á Íslandi undir stjórn Samfylkingarinnar væri þar en hæstv. forsætisráðherra hefur hafnað þessari leið. Hæstv. fjármálaráðherra hefur margítrekað kallað þetta að pissa í skóinn sinn, þó svo að í síðasta skipti sem hann gerði það hafi ríkisstjórnin komið hálfum mánuði síðar og lækkað virðisaukaskatt á bensín og olíur, sem er nákvæmlega sama aðgerðin, reyndar tímabundin í fjóra mánuði, ef ég man rétt, rennur út í ágúst og hættan er sú að þá fari allt upp í loft aftur.

En stóra myndin er að ríkisstjórnin segir að hún ætli að gera allt og bara hvað sem það kostar til að ná hallalausum fjárlögum 2027. Það er 1,1 milljarður. Ef við búum til myndlíkingu um heimili sem er með 800.000 kr. útgjöld á mánuði þá þýddi það að heimilið væri með 523 kr. í afgang. Það er afgangurinn, 6.000 kr. á ári. Það er það sem ríkisstjórnin er að stefna að, meiri hlutinn. Þegar við síðan horfum á forsendubreytingarnar sem hafa orðið, eins og 2. minni hluti gerir svo vel hér á bls. 2 í sínu áliti, og ég hvet alla sem hafa áhuga á þessum málaflokki til að lesa það álit, þá virðist bara áætluð afkoma vegna þeirra breytinga sem þar er fjallað um vera mínus 16–22 milljarðar. Þá er náttúrlega 1,1 milljarður löngu farinn, nema ríkisstjórnin grípi til þeirra stórtæku aðgerða í fjárlögum að skera niður fyrir þessa upphæð, skera niður þjónustu, skera niður velferðarkerfið, sem er ekki það sem nýja ríkisstjórnin í Danmörku er að gera. Hún er að styrkja velferðarkerfið. Hún er að styrkja landbúnaðinn. Hún er að gera ýmislegt þar og mér finnst núverandi ríkisstjórn á Íslandi vera að gera algerlega hið gagnstæða. Mér finnst hún haga sér svolítið eins og hægri stjórn og meira að segja hægri stjórnin í Svíþjóð gengur ekki svona langt. Hún lækkar virðisaukaskatt á matvæli til að koma til móts við tekjulág heimili.

Tíminn líður allt of hratt þegar maður byrjar að tala um þessa hluti. Það er eitt sem mig langar að nefna af því að mér hefur þótt það vera ljóður á ráði núverandi ríkisstjórnar, þ.e. að mér finnst ríkisstjórnin, og þar með meiri hlutinn hér í þinginu, líta svo á varðandi hinn almenna varasjóð — og gagnrýni fjármálaráðs beinist reyndar líka að því að það sé of bjartsýnt, það séu teiknaðar upp tekjur, það sé ekki nógu mikil fótfesta í þeim. Þá þarftu í raun og veru alltaf að búast við því, við höfum séð það á síðustu árum, að einhver áföll komi úr ólíkum áttum og algerlega án þess að við séum undir það búin nema við séum til að mynda með öflugan almennan varasjóð. En ríkisstjórnin hefur skorið hann niður í lágmark og meiri hlutinn hefur gengið lengra, að færa fjármuni þar á milli úr almenna varasjóðnum til að fjármagna eitthvað annað, þ.e. hann er ekki lengur til. Það sem er verra er að ríkisstjórnin hefur tekið almennu varasjóðina í einstökum málaflokkum út líka. Af því við vorum að ræða samgönguáætlun í dag þá væri hinn almenni varasjóður þar upp á einhverjar 250–300 milljónir sem væri hægt að grípa til þegar eitthvað óvænt kemur upp á.

Að öllu þessu sögðu þá þýðir það — eins og kemur fram í áliti 2. minni hluta, á bls. 7, í ljósi þess hversu rýr almennur varasjóður er, bæði hinn almenni og eins varasjóðir málaflokka, samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, og sé litið til notkunar þessara varasjóða undanfarin ár, innan marka þessara laga um opinber fjármál — að það er ljóst að enn meiri áherslu verður að leggja á raunsæ afkomumarkmið fjármálaáætlunar en ella. Þar finnst mér að meiri hlutanum misfarist. Þetta er einfaldlega ekki nógu trúverðugt þegar menn hlusta ekki á ályktanir og ábendingar fjármálaráðs, taka þær ekki alvarlega og segja: Ja, við vorum búin að ákveða að uppfæra ekki neinar forsendur af því að það skiptir ekki máli. Við ætlum bara að halda okkur við það sem hentar betur. Það þýðir í raun og veru að þegar þessi fjármálaáætlun verður samþykkt þá verður sagt: Ja, það er afgangur, það eru hallalaus fjárlög árið 2027, 1,1 milljarður. Svo í sumar þarf að klára vinnu við fjárlögin og þegar fjárlögin birtast hér í byrjun september þá þarf þessi tala, 1,1, að birtast aftur, eða einhvers staðar alla vega í plús, eða helst náttúrlega miklu meira, vegna þess að 1,1 er ekki neitt. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við því? Á bara að halda okkur í þessu svartholi, þjóðinni, næstu þrjá mánuði og svo gerist bara eitthvað allt annað? Til að ná þessu fram, miðað við þær breytingar sem hafa orðið, þarf stórfelldan niðurskurð eða stórfelldar skattahækkanir eða hvort tveggja og það mega heldur engin áföll eiga sér stað af því að það er búið að taka í burtu varasjóðina eða þeir eru komnir í lágmark, hinn almenni varasjóður. Mér finnst trúverðugleikinn ekki nægilega mikill.

Ég er alveg sammála því að þegar við förum í forgangsröðun fjárheimilda er ekki óeðlilegt, eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á, að heilbrigðismál og öldrun, eða málefnasvið 28, taki til sín stærstan hlutann. Við erum að eldast og heilbrigðismálin hafa tekið til sín á síðustu árum sífellt vaxandi fjármuni, eru einfaldlega að verða dýrari. Það eru bæði ný lyf og ný tækni og það bara fer meira þangað. Afleiðingin er hins vegar sú að það fer of lítið í menntun. Framhaldsskólarnir eru skornir niður á þessum árum þrátt fyrir að við séum að fá stærstu árgangana hérna inn og það þyrfti að auka og það þyrfti að byggja fleiri verknámsskóla hraðar, sem ríkisstjórnin hefur því miður dregið lappirnar með. Nýsköpun dregst saman. Samgöngurnar dragast saman þrátt fyrir öll stóru orðin sem voru sögð hér fyrr í dag um samgönguáætlun. Það er einfaldlega þannig. Framkvæmdaramminn lækkar auk þess um 2 milljarða á ári, óútskýrt.

Þetta er að mínu mati gallinn við þetta og ég tek undir það sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson sagði hér í lok síns máls um afstöðu 2. minni hluta, og kemur fram á bls. 9–10 í álitinu, að það séu þarna þó nokkur atriði sem þurfi einfaldlega að taka efnislega afstöðu til, eins og uppfært afkomumat fyrir árin 2027 og 2028, næmnigreining vegna helstu áhættuþátta, mat á áhrifum breyttra forsenda á tekjur ríkissjóðs, útgjöld vegna atvinnuleysis, sem því miður fer vaxandi, greining á stöðu almenna varasjóðsins og hinna varasjóðanna, mat á því hvernig óvænt útgjöld innan einstakra málefnasviða verði fjármögnuð þar sem það er búið að sópa út varasjóðum einstakra málaflokka og síðan skýring á tengslum fjármálaáætlunar við atvinnustefnu, samgönguáætlun og fyrirhugað innviðafélag.

Ég tek undir með hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni (Forseti hringir.) sem leggur til að þessu máli verði vísað til ríkisstjórnarinnar til betri og ítarlegri vinnu til að styrkja trúverðugleika þessarar fjármálaáætlunar (Forseti hringir.) sem skiptir öllu máli ef við ætlum að ná tökum á verðbólgunni og lækka vexti.