157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:57]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans góðu yfirferð yfir fjármálaáætlun. Hv. þingmaður þekkir málaflokkinn vel, bæði eftir langa setu á þingi og eftir að hafa setið í stóli fjármálaráðherra þannig að hv. þingmaður er mörgum hnútum kunnugur í þessum efnum. Ég deili reyndar ekki með hv. þingmanni samanburði hans á hægri stjórnum og síðan þeirri vinstri stjórn sem hér er við völd. En látum það liggja á milli hluta. Ég held að hægri stjórn myndi helst ekki vilja bendla sig við þau vinnubrögð sem eru hér.

Það virðist vera aðallausn hæstv. ríkisstjórnar við þeim vandamálum sem hún hefur sjálf komið sér í í efnahagsmálum að skatta sig út úr vandamálunum og auka álögur á heimili og fyrirtæki í landinu. Við sáum það með 30 milljarða skatta- og gjaldahækkunum í desember og nú er verið að boða hér stórfelldar skatta- og gjaldahækkanir. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hefur það nokkurn tímann verið lausn í ríkisfjármálum, ef horft er til lengri tíma, að skatta sig út úr vandamálunum? Telur hann ekki að sú lækkun á virðisaukaskatti sem varð á eldsneytisverði tímabundið, eins og hv. þingmaður kom inn á — hvort þar hafi ekki legið meira að baki að reyna að ná verðbólgunni undir 4,7% tímabundið til þess að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði myndu ekki bresta?