fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það væri mjög gaman ef við hefðum nægan tíma til að taka hér umræðu um hægri stjórnir og vinstri stjórnir. Það eru ákveðin merki sem þessi stjórn er að sýna um að hún sé últra hægri stjórn, samanber nýfrjálshyggjuhugmyndirnar um þetta innviðafélag sem tekur engin sjónarmið inn um öryggi eða byggð eða eitthvað annað, það er bara arðsemi, stjórnað af fjármálaráðuneytinu og af utanaðkomandi aðilum, engum sem tengjast vegagerð í landinu. Að setja börn í lokuð úrræði í brottfararstöð, það hefur stundum verið sagt að það sé hægri en ekki vinstri.
Í þessu máli neitar ríkisstjórnin að koma til móts við tekjulægri heimili, segir að það hafi verið vond efnahagsstjórn sem hafi verið hér á síðustu árum þegar við tókum þátt í þessum stóru kjarasamningum 2018 og svo aftur 2023 með aðkomu ríkissjóðs, með því að styrkja stöðu þeirra sem minna hafa. Þessi ríkisstjórn neitar því m.a. að lækka virðisaukaskatt á matvæli, sem hún gæti gert og margir eru að benda á og mörg lönd eru að gera, til þess að styrkja stöðu tekjulágra heimila. Þetta eru allt einkenni hægri stjórnar.
En ég er alveg sammála hv. þingmanni að þú skattleggur þig ekki út úr slíkum vanda sem þú ert í í dag. Það er skynsamlegt að hækka skatta þegar allt er í blússandi gangi og þú þarft að slá á þenslu. Það getur verið erfitt fyrir hægri stjórnir einmitt að gera það þó að það sé langskynsamlegast og í baksýnisspeglinum hefði alveg mátt hugsa sér það. En krafan í samfélaginu hefur allan tímann verið sú að við ættum að auka kaupmátt og staðreyndin er náttúrlega sú að kaupmáttur hefur vaxið hér á Íslandi með ævintýralegum hætti á síðustu árum. Ég held að ég hafi séð einhvers staðar frétt um það að laun á Íslandi væru 60% hærri en meðallaun í Evrópusambandinu, svo að dæmi sé tekið, þannig að lausnin er ekki að skattleggja sig út úr vandanum eins og margt sem ríkisstjórnin er að gera. (Forseti hringir.) Það þarf heildarlausnir. Það þarf að horfa til allra hópa. (Forseti hringir.) Það var það sem ég var að benda á og mér hefur fundist skorta hjá ríkisstjórninni.