157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:02]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans fyrra andsvar. Það hefur náttúrlega alltaf verið einkenni hægri stjórna að lækka skatta. Við trúum því að með því að lækka skatta og álögur á fólkið í landinu þá veitum við meira svigrúm til að skapa fleiri störf og þar með stækkar kakan og tekjur ríkisins hækka á móti.

Hv. þingmaður kom aðeins inn á niðurskurðinn sem er í fjármálaáætlun sem ber alveg niður á kolröngum stað; ég tek undir með hv. þingmanni þar. Nú eru hér einhverjar hagræðingartillögur, 57 tillögur að mig minnir, eða aðgerðaáætlanir eða aðgerðir, og það eru fimm komnar í framkvæmd, bara fimm, hjá hæstv. ríkisstjórn. Hv. þingmaður sagði líka að það væri hægt að skera niður og á móti líka að hækka skatta. En það er eiginlega enginn vilji hjá hæstv. ríkisstjórn til að skera niður eða hagræða í rekstri ríkisins af því að útgjöldin eru að stærstum hluta laun og bætur. Það er stærsti hlutinn í því að reka Landspítalann, langstærsti hlutinn eru laun, og líka í rekstri annarra stofnana, framhaldsskólanna og annað — þetta eru laun og svo erum við að borga bætur.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hefur hann einhverja trú á því að ríkisstjórnin muni fara í að reyna að skera einhverja fitu af ríkisrekstrinum? Af því að síðan kemur það fram, eins og hv. þingmaður bendir á, að það er verið að boða 4 milljarða kr. niðurskurð í framhaldsskólum landsins. Af samtölum mínum við skólameistara þá þarf jafnvel að leggja niður námsbrautir til þess að hægt sé að mæta þessum niðurskurði.