157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:04]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo að ég svari spurningunni strax: Ég vona sannarlega að ríkisstjórnin og meiri hlutinn finni leiðir til að taka þar sem hægt er að taka án þess að skerða grunnþjónustu í velferðarþjónustu, heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu og menntunina, ég vona það. En það er verið að skera niður menntunina. En það sem ég var kannski að benda á í ræðunni var að ný ríkisstjórn í Danmörku, sem samanstendur af sósíaldemókrötum, sama flokki og hæstv. forsætisráðherra og hv. þm. Dagur B. Eggertsson eru í, vinstri flokki og síðan tveimur miðjuflokkum, er að lækka skatta til að örva atvinnulífið og létta á heimilunum. Sú ríkisstjórn er að fara að lækka virðisaukaskatt á matvæli, en þeir hafa verið miklir prinsippmenn í því að viðhalda einu skattþrepi í virðisaukaskatti, til að koma til móts við fólk. Þessi ríkisstjórn neitar því. Hún gæti komið til móts við fólk og haft áhrif á verðbólguna til lengri tíma en þá fjóra mánuði sem lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti á að vara. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að tilgangurinn hafi verið sá að ná þessu niður í 4,7% svo að rauð strik kjarasamninga haldi.

Af því að við vorum að ræða samgöngumál í dag þá er stóra myndin þessi: Ef þeir fjármunir sem voru teknir af fyrirtækjum og atvinnulífinu, upp á 18,3 milljarða, veiðigjöld, vörugjöld, aukin skattheimta á bíla í gegnum kílómetragjald, sem ríkisstjórnin sagði að ættu að fara í samgöngur, hefðu farið í samgöngur, ef aukningin væri 18,3 milljarðar, þá værum við sennilega bara í góðum málum með samgönguáætlun. Þá væru öll stór orð hv. þm. Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, framsögumanns málsins — þá væri kannski eitthvað á bak við þau en það vantar 10 til 12 milljarða á ári til að það gangi eftir.