fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega ræðu og mig grunar að það sé ekki ýkja langt á milli okkar í einhvers konar ný-keynesískri nálgun á efnahagsstjórn. Vegna vangaveltna um skattalækkun á fyrirtæki þá lækkaði tekjuskattur fyrirtækja um prósent núna um áramótin. Tímabundna hækkunin féll síðan niður og það var ákveðið að halda henni ekki áfram. Hvort það hafi drifið verðbólgu veit ég ekki. Ég tek eftir því að í nýrri álitsgerð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er nú frekar verið að hvetja til skattahækkana heldur en hitt til að hemja þensluna. Það má greinilega hafa fleiri en eina skoðun á þessu. Og þrátt fyrir allt erum við hvað verðbólgu varðar ekki komin í kreppuástand þótt við horfum auðvitað á ákveðin dæmi eða merki um kólnun, t.d. sjáum við það í atvinnuleysistölunum. En að því leyti má kannski segja að það sé dálítið erfiðara að velja bremsuna eða bensínið akkúrat við núverandi aðstæður þegar heita og kalda vatnið er enn þá að blandast og maður veit ekki alveg hvert það er að fara. En stöðugleikareglan á að hjálpa okkur í þessu. Kannski eitt af því sem við þurfum aðeins að velta fyrir okkur, með þessum fókus núna á hallalaus fjárlög ofan í hugsanleg merki kólnunar, er hvort á einhverjum tímapunkti getum við farið að ræða hvort við ættum að bæta í t.d. fjárfestingarframkvæmdir og innviði ef kólnunin fer að verða dóminerandi, ef ég má sletta, en ég held að við séum ekki komin þangað. Ég held að það sé mikilvægt og trúverðugleikamerki að skila hallalausum fjárlögum þó svo að það sé ekki búið að uppreikna allar forsendur og það verði ekki einfalt.