157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:12]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka prýðilegt andsvar og taka undir að mér fannst margt takast vel varðandi efnahagsleg viðbrögð við Covid, þar var ákveðin hlustun, m.a. á bara umræðu í samfélaginu og hagfræðileg rök fyrir því að stíga sterkar inn í. Ég hef reyndar sagt það áður og ætla ekki að gera það að neinu meginmáli að það hefði kannski mátt horfa í ríkari mæli til sveitarfélaga en látum það vera. Ég held að þessar spár sem gripu ekki alveg þróunina eins og hún síðan varð sé bara svona almennt umhugsunarefni. Það er erfitt að spá, sérstaklega um framtíðina. Ég hef líka lengi verið hugsi yfir þessari bröttu vaxtalækkun Seðlabankans án mótvægisaðgerða sem kom eiginlega ofan í þetta og hleypti upp verði á öllum eignamörkuðum og var án efa þensluhvetjandi, þó að þetta sé nú kannski ekki efni í andsvör á Alþingi heldur í einhvers konar úttekt eftir á þegar nægur tími er liðinn til þess að öll kurl séu komin til grafar. Það má án efa mikið af þessu læra. En viðbrögðin við Grindavík voru líka að langstærstu leyti mjög góð að mínu mati og vel heppnuð. Þar vorum við að sýna að við sem samfélag stöndum með sveitarfélagi sem lendir í svona kröppum dansi og náttúruhamförum. Ég var bara mjög stoltur af því og studdi það af ráðum og dáð. Það er alls ekki þannig að það sé svart og hvítt í þessu. En ég held að núverandi ríkisstjórn hafi viljað standa við það að þessi tekjuskattshækkun á fyrirtæki hafi verið tímabundin (Forseti hringir.) vegna þess að það er líka svona traustsmál að (Forseti hringir.) lengja ekki í öllu sem sett er á tímabundið og ég held að það hafi verið farsælt.