157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:14]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað umræða sem er kannski ekki nákvæmlega um fjármálaáætlunina per se en allt tengist þetta. Gagnrýni til að mynda ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans hefur einmitt verið að menn séu að reyna að taka til eftir einhverja óreiðu sem mér finnst vera svakalega ósanngjörn umræða, vægast sagt. Í Covid-aðgerðunum gerðum við mjög mikið, sennilega of mikið, en minni hlutinn og þingið vildu gera miklu meira. Svo segja menn núna: Ja, við hefðum átt að hætta fyrr og ég er alveg sammála því, í ljósi alls sem var. Seðlabankinn hefði hugsanlega átt að fara fyrr í lækkun og fyrr í hækkun og jafnvel ekki svona djúpa lækkun í ljósi baksýnisspegilsins. Það sama gildir um sveitarfélögin af því að hv. þingmaður var í forsvari fyrir stærsta sveitarfélagið á þessum tíma og sveitarfélögin æptu hér á ríkið og vildu fá alls konar stuðning. Ég hef tekið eftir því í ársreikningum síðastliðinna tveggja ára, ársreikningarnir voru að koma núna á síðustu mánuðum, að sveitarfélögin standa bara helvíti vel, — afsakið orðbragðið, frú forseti — bara mjög vel og miklu betur heldur en ég hafði vænst og afgangurinn hefur bara gengið alveg ótrúlega vel. Þannig að eitthvað hefur verið gert rétt til þess að koma þeim í gegnum þennan tíma líka.

Í lokin vil ég segja varðandi fjármálaáætlunina að það er eitthvað sem mér finnst að meiri hlutinn þurfi að horfa til af því að það kemur fjármálaáætlun á hverju ári. Ég held að það að segjast hafa tekið einhverja ákvörðun um að uppfæra ekki neinar töflur, alveg sama hvað gerist, séu mistök og að það dragi úr trúverðugleika. Ég held að menn þurfi að horfa til þess að við ábendingum og ályktunum sem fjármálaráð kemur með þurfi að bregðast við með formlegum hætti. Þær eiga að vera þannig. Annars lyftum við ekki stöðu fjármálaráðs í þessu kerfi, annars aukum við ekki trúverðugleikann sem fjármálaáætlun á að gefa út í samfélagið um að við séum á einhverri tiltekinni leið og (Forseti hringir.) vonandi þeirri réttu, sem ég sem sagt efast um að við séum á í augnablikinu.