fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Hér hefur farið fram ágætisumræða um fjármálaáætlun en mig langar að byrja á því að ítreka að hér hefur komið fram í ræðum að ýmislegt í áætluninni þarf kannski uppfærslu. Svo erum við að fara í ofboðslega mikilvæga þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst og það skiptir máli að við sköpum rými fyrir okkur hér í þinginu til að uppfæra þessa fjármálaáætlun og ræða þessi mikilvægu mál sem við erum að greiða atkvæði um í lok ágúst. Því er mikilvægt að við þingmenn mætum í vinnuna í þingsal í einhverja daga, þrjá eða fjóra daga, fyrir atkvæðagreiðsluna til að klára þessi mál. Menn eiga ekkert að óttast það í meiri hlutanum að aukin umræða til handa almenningi skaði þeirra málstað eitthvað frekar. Við eigum að sinna vinnunni okkar vel hér á þinginu og ég bara hvet meiri hlutann til að taka vel í þá hugmynd Sjálfstæðisflokksins að vera með svokallaðan þingstubb hér fyrir atkvæðagreiðsluna þar sem fjármálaáætlun og aðildarviðræður ESB eru ræddar.
Ég veit að margir kollegar mínir í menntageiranum fögnuðu þegar flokkar á borð við Viðreisn og Samfylkingu enduðu saman í ríkisstjórn því að menn héldu að það væri ávísun á betri tíð og blóm í haga í menntamálum. En raunveruleikinn er allt annar og það sjáum við vel í þessari fjármálaáætlun. Það sjáum við vel í störfum hæstv. ríkisstjórnar.
Það skiptir máli að menntamál séu rædd í tengslum við fjármálaáætlun og svona aðeins til að upplýsa alþjóð þá hefur niðurskurðarhnífurinn runnið vel í gegnum menntamálin hjá hæstv. ríkisstjórn, 7,1% niðurskurður í framhaldsskólunum og niðurskurður á háskólastigi. Ég held að enginn sem kaus þessa flokka, Viðreisn og Samfylkingu, hafi búist við þessu, að það yrði niðurskurður í menntakerfinu. Þar með er ég ekki að segja að það þurfi endalaust að þenja kerfið út en það dapurlega við þetta er það að ráðuneyti barna og mennta er í raun í einhverjum dvala. Það eru margir ráðherrar sem hafa verið þar við störf á þessum tæpu tveimur árum sem liðin eru af kjörtímabilinu, fjórir ráðherrar að ég held. Það er líklegast Íslandsmet og mögulega heimsmet að á slíkum stuttum tíma séu fjórir ólíkir ráðherrar.
Það leiðir kannski hugann að grein sem birtist örugglega í Morgunblaðinu fyrir ekki svo löngu síðan eftir Meyvant Þórólfsson þar sem hann nefnir að menntamálin séu afgangsstærð hjá mörgum stjórnmálamönnum, jafnvel óháð flokkum, en alla vega er Sjálfstæðisflokkurinn með menntamálin á oddinum í dag og hefur verið allt þetta kjörtímabil. Við sættum okkur ekki við þessa stöðu. Þess vegna viljum við varpa ljósi á hana. Hvers vegna er ég að tala um það hér þegar umræða um fjármálaáætlun á sér stað? Það er vegna þess að menntun skapar a.m.k. 50% af hagvexti hvers lands, hverrar þjóðar.
Aftur að mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ég hvet almenning og sérstaklega fólk sem hefur áhuga á menntamálum til að skoða þingmálaskrána, hvað eru mörg mál á dagskrá hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu á þessu þingi og bera það saman við önnur ráðuneyti. Ég skal bara upplýsa almenning um það, og auka leti hans, að það eru tvö ný mál, ólíkt öðrum ráðuneytum, þar sem margfalt fleiri mál eru á dagskrá. Annað þeirra er gagnagrunnur og hitt er símabann. Þetta eru þessi nýju mál sem þessi ríkisstjórn leggur í púkkið inn í menntamálin í grunnskólunum í dag. Maður veltir fyrir sér: Er þetta ekki bara nóg, tvö ný mál, málaflokkurinn er í frábærum vexti og góðri stöðu? Svarið við því er að sjálfsögðu nei, málaflokkurinn er alls ekki á þeim stað. Í skýrslu OECD frá 2025, síðasta sumri, kemur einfaldlega fram að framleiðni landsins sé í hættu út af menntakerfinu. Þar varar OECD okkur við því að a.m.k. 5% framleiðnilækkun sé í pípunum verði ekki spyrnt við fótum. Og hvað gerir ríkisstjórnin? Hún setur á tvö ný mál hvað menntakerfið varðar. Annað snýst um gagnagrunn og hitt um símabann.
Þetta er raunveruleikinn sem blasir við okkur í stjórnarandstöðunni. Þetta er raunveruleikinn sem blasir við mér sem skólamanni. Þetta er raunveruleikinn sem blasir við börnunum okkar. En hvað þýðir a.m.k. 5% framleiðniminnkun, eða alla vega að hún sé í pípunum? Það þýðir 250 milljarða á ári. Eiginlega allar aðrar hagtölur blikna í samanburði við þetta en þetta er ekki umræðan hér á Alþingi. Ég ætla ekki að segja að umræðan sé, með leyfi frú forseta, um tittlingaskít þegar er verið að tala um nokkra milljarða til og frá, göng hér og göng þar. En hér erum við að tala um 250 milljarða á ári sem kæmu inn í þjóðarbúið ef menn hefðu einhvern áhuga, þekkingu eða getu til að gera eitthvað í málaflokknum. Og hvað gerir ríkisstjórnin? Hún sker niður í framhaldsskólunum um 7,1%, sker niður á háskólastiginu og kemur með tvö ný mál, gagnagrunn og símabann.
Ég ætla að fullyrða það hér að ef Sjálfstæðisflokkurinn væri við völd þá væri þetta ekki staðan í menntamálum. Ég er ekki að firra Sjálfstæðisflokkinn ábyrgð á undangengnum árum. Hann hefði auðvitað getað gert miklu betur en hann hefur því miður ekki haft taumana í þessu ráðuneyti í dálítið langan tíma. Það er kominn tími til að þessi málaflokkur fái þá athygli sem hann á skilið. Síðustu ár hafa farið í farsæld barna sem hefur því miður litlu skilað og við höfum séð það í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar að það er falleinkunn á það allan þann tíma, alla þá tugi milljarða sem hafa farið í það verkefni. Það skiptir nefnilega máli að það séu ekki bara einhverjar hugmyndir og fiðrildi, fallegar umbúðir. Það verður að vera innihald sem skilar mælanlegum árangri.
Hér er ég aðeins búinn að impra á menntamálunum sem hafa kannski lítið verið til umfjöllunar í kringum þessa fjármálaáætlun. Ég tel það bara í mínum verkahring og mína skyldu að beina sjónum almennings og þingsins að þessum málaflokki því að það er ekki bara lýðræðið sem er í húfi þegar 40% barna geta ekki lesið sér til gagns eða eru ekki með grunnfærni í lesskilningi heldur er þetta grjóthart efnahagsmál. Það er ekki eitthvað sem ég er að finna upp hér í pontu heldur bendir OECD á það, og er búið að gera það reyndar ítrekað, að við séum á rangri leið, þetta kosti samfélagið ekki 100, ekki 200 heldur muni það kosta samfélagið 250 milljarða árlega að gera ekki neitt eins og staðan er því miður í dag.
Við búum í samfélagi þar sem við höfum allt til alls. Við erum rík af náttúruauðlindum, búum yfir orku sem jafngildir í raun olíu, erum með heitt vatn og gufu sem við getum bæði nýtt og svo virkjað, erum með fallvötnin okkar. Við erum með fiskimiðin og við erum með ferðamannaiðnaðinn, hugverkaiðnaðinn og fullt af öðrum stoðum. Við erum efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna hvað lífsgæði varðar og erum öruggasta ríki í heimi, að mig minnir 15. árið í röð. Því spyr ég: Hvers vegna eru menntamálin á þeim stað sem þau eru á? Hvers vegna er ekki 5% framleiðniaukning hér á landi í stað samdráttar? Hvers vegna eru ekki 250 milljarðar að skapast í viðbót inn í samneysluna hjá okkur? Bókaþjóðin svokallaða hefur allar forsendur til þess. En því miður verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum eftir að ég kom hingað inn á þing með að finna það hve ríkisstjórnin er máttlaus í málaflokknum og áhugalaus, sem er í raun bara dapurlegt.
En nóg af þessu. Mig langar aðeins að flytja mig meira yfir í — ég sé að tíminn líður það hratt — upplýsingar sem fjármálaráð hefur látið samfélaginu í té, álitsgerð. Ef maður skoðar þær upplýsingar segir fjármálaráð að fjármálaáætlun sé í raun mjög brothætt, bjartsýn og of veik til að bera uppi þær væntingar sem ríkisstjórnin byggir á henni. Þetta er enn einn ljóður okkar stjórnmálamanna, ég ætla ekki að fría sjálfan mig því, að keyra upp væntingar sem lítil innstæða er fyrir. Það er ekki tilviljun að virðing þingsins sé stundum við frostmark. Það eru ekki góð vinnubrögð hjá okkur þingmönnum að keyra upp væntingar sem lítil innstæða er fyrir og þetta segir fjármálaráð um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hér hafa margir þingmenn stjórnarandstöðunnar komið upp og nefnt það sama. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi nú hér í umræðum ekki fyrir svo löngu síðan að það þyrfti að uppfæra fjármálaáætlun og hvatti til þess að við þingmenn mættum hér til vinnu í þingsal fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst í sumar.
Mig grunar því miður að stjórnarmeirihlutinn hafi engan áhuga á því, ekki nokkurn, að mæta í þingsal og taka umræðuna við stjórnarandstöðuna þar sem verða til fréttir, verður til samráðsgrundvöllur um bæði fjármálaáætlun og svo þá vegferð sem stjórnin — reyndar ekki stór hluti stjórnarinnar. Mér heyrist nú Viðreisn vera áfram um málið, ESB-aðild, heyrist Samfylkingin vera á harðahlaupum, einstaka þingmenn þar innan húss sem sverja sig í ætt við Viðreisn. En mér finnst í raun, svo ég segi það bara upphátt, að þeir þingmenn Viðreisnar sem koma hér og tala um aðild að Evrópusambandinu, svo sem hv. þm. Pawel Bartoszek, hv. þm. Ingvar Þóroddsson og hv. þm. Grímur Grímsson, séu menn að meiri að koma hér og segja þetta hreint út. Það er þeirra sjónarmið og þeirra skoðun og ég er alveg viss um að þessir þingmenn eru ekki með þá hugsun að skaða Ísland. Þeir telja að Íslandi sé betur borgið innan ESB og það er bara allt í lagi. Við þurfum bara að ræða það þannig. Það er alla vega heiðarlegt. Þess vegna finnst mér Samfylkingin spila tveimur skjöldum. Það er verra. Maður verður illilega var við það að hér eru ráðherrar Viðreisnar að tala fyrir málinu en það sést bara ekkert til ráðherra Samfylkingarinnar þó svo að einstaka þingmenn hennar tali fyrir málinu.
Við skulum átta okkur á því síðan að fjármálaráð er ekki í stjórnarandstöðunni. Það er ekki pólitískur andstæðingur ríkisstjórnarinnar þannig að orð og texta fjármálaráðs ber að skoða í því ljósi.
Stærsta mótsögn fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar birtist í umræðunni um aðhald. Það er talað um aga, festu og ábyrgð í ríkisfjármálum en á sama tíma, og ég veit að það er eitur í beinum margra innan ríkisstjórnarinnar, en þegar menn eru í samstarfi þar sem flokkar eru að mörgu leyti ólíkir — ég held reyndar að Samfylking og Viðreisn gætu runnið saman í einn flokk því þetta eru bara tveir vinstri flokkar, alla vega meintur hægri flokkur sem hefur runnið hressilega til vinstri og meintur vinstri flokkur sem hefur runnið hressilega til hægri og í raun myndað einn flokk — ég held að þessir flokkar séu líkast til ekki mikið sáttir við það að tengja saman almannatryggingar og launavísitölu. En það er fórnarkostnaðurinn við að fara í ríkisstjórnarsamstarf og ég get að ákveðnu leyti skilið það. Menn þurfa að fórna einhverju til að komast í samstarf og það er kannski ekki pólitískt klókt að viðurkenna það, enda hefur það ekki verið viðurkennt hér í pontu Alþingis, en það væri heiðarlegt að viðurkenna það.
En fjármálaráð bendir á að almannatryggingar nemi um 31% af heildarútgjöldum ríkisins og að nýja kerfið sem var samþykkt hér tengi stóran hluta útgjalda sjálfkrafa við launaþróun þannig að hluti fjármála ríkisins er bara á sjálfstýringu sem menn hafa enga stjórn á og þá hverfur allur sveigjanleiki. Við höfum heyrt það hér í pontu að Sjálfstæðismenn eru talaðir niður, að menn vilji ekki gera vel fyrir öryrkja og aldraða og þá sem minna mega sín. Auðvitað er það alrangt. Undir stjórn Sjálfstæðisflokksins eru lífskjör á Íslandi þau bestu í heimi samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Flóknara er það nú ekki. Skoðum ráðstöfunartekjur t.d. eldri borgara, hvernig þær hafa þróast sem hlutfall af ráðstöfunartekjum 25–55 ára, eða á mannamáli: Hvernig hafa tekjur eldri borgara sem hlutfall af tekjum þeirra sem eru vinnandi á markaði, 25–55 ára, þróast? Um 2003 voru tekjur eldri borgara 65% af tekjum hinna. Árið 2010 voru þær orðnar 70% og 2018 orðnar 80% og svo er talað um kjaragliðnun, enn einn frasinn ásamt ræsum vélarnar og verðmætasköpunarhausti, en því miður, ef frasarnir eru hamraðir nógu oft inn þá einhvern veginn fer fólk að trúa þeim.
Ég sé að tíminn er að lokum kominn hjá mér, frú forseti, og enn og aftur er tímastjórnun hjá mér afar slæm. (Forseti hringir.) En ég læt máli mínu lokið í bili, fylgist með umræðunni og mun líklega taka aðra ræðu fljótlega, frú forseti.