157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:37]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Í tilefni af ágætri ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens vil ég nefna hversu skrýtin staða það er að vera að ræða hér alvörumál eins og t.d. niðurskurð til framhaldsskólastigsins, þvert á gefin loforð um stórsókn í menntun og af fullkomnu tillitsleysi gagnvart því að hér séu stærstu menntaskólaárgangarnir að hefja þar nám, að ræða hér niðurskurð upp á 4 milljarða sem segir þarna í fjármálaáætluninni, en enginn veit hvernig þetta mun líta út vegna þess að forsendur allrar fjármálaáætlunarinnar eru úreltar. Þar með er umræðan hér til lítils gagns, því miður. Á þessu ber meiri hlutinn hér á þingi auðvitað ábyrgð, fyrst og fremst meiri hluti fjárlaganefndar sem þráaðist við að uppfæra áætlunina í samræmi við áreiðanlegustu gögnin. Þetta er þvert á það sem lagt var upp með í lögum um opinber fjármál.

Ég vil í upphafi ræðu minnar geta rammagreinar þrjú í álitsgerð fjármálaráðs þar sem er einmitt farið yfir það að áratugur er liðinn frá setningu nýrra laga um opinber fjármál. Þar er farið yfir árangurinn, áskoranir og lærdóm. Fjármálaráð tekur einmitt fram að á síðastliðnum tíu árum hafi umgjörð og ferlar í opinberri fjármálastjórn tekið verulegum framförum. Um þetta getum við verið sammála. Áætlanagerð er nú markvissari, framsetning gagna skýrari og tenging milli stefnumótunar og framkvæmdar sterkari en áður. Það er einmitt nákvæmlega þetta, tengingin á milli stefnumótunar og framkvæmdar, sem er ástæðan fyrir því að lög um opinber fjármál gera þá kröfu að fjármálaáætlun til lengri tíma sé samþykkt. En fjármálaráð tekur einnig fram að reynslan bendi til þess að þótt formleg umgjörð hafi styrkst, við erum jú vissulega að ræða fjármálaáætlun til fimm ára, hafi síður tekist að festa þessi viðmið í sessi sem leiðarljós í stefnumótun og ákvarðanatöku, einkum þegar reynir á. Og núna akkúrat reynir á þegar efnahagshorfur fara versnandi. Þegar hagvöxtur fer minnkandi, atvinnuleysi eykst og verðbólgan hækkar á milli mánaða þá reynir akkúrat á festu. Það reynir á reglurnar þegar mikið liggur við. En þá er farin þessi einkennilega leið meiri hlutans að uppfæra ekki tölurnar og það fæ ég ekki skilið. Það ónýtir bara, eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar, alla umræðu um einstaka efnisþætti áætlunarinnar.

Við ættum auðvitað að vera að ræða það hvernig við viljum búa um framhaldsskólastigið, búa um ríkisfjármálin upp á einhverja aðra nálgun en meiri hlutinn leggur til, sem er niðurskurður. Er það forsvaranlegt og hvaða áhrif hefur það á framtíð samfélags okkar og framleiðni? Hvaða áhrif mun þetta hafa? En því miður verður umræðan um það, eins og ég segi, til einskis nýt vegna þess, eins og svo sem er viðurkennt í áliti meiri hluta fjárlaganefndar, að forsendur hafa breyst. Fjármálaáætlunin sem hér er til umræðu mun ekki standast. Það liggur fyrir. Allt verður þetta svo skrýtið, frú forseti, þegar maður les tillöguna sjálfa, tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Þar segir einmitt réttilega á bls. 20, með leyfi forseta: „Trúverðugleiki ríkisfjármálastefnunnar felst í því að orðum fylgi athafnir.“ Þetta er auðvitað lykilatriði. Áætlanir eru til einskis nýtar ef þær eru bara úreltar tölur á blaði, til þess fallnar að styðja hugmyndir ríkisstjórnarinnar eða slagorð ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög árið 2027. En áætlunin byggist einmitt á úreltri þjóðhagsspá, hvílir á febrúarspá Seðlabanka Íslands en ný þjóðhagsspá bankans var kynnt 20. maí og sýnir einmitt minni hagvöxt og meira atvinnuleysi öll þau ár sem þjóðhagsspáin spáir fyrir um, 2026–2028, og spáir töluvert meiri verðbólgu. Meiri hlutinn viðurkennir þetta en vill hins vegar ekki uppfæra áætlunina og svo sem eins og hefur komið fram í máli mínu þá fæ ég það ekki skilið. Því hefur verið borið við að það kunni að taka kannski tvær vikur að uppfæra áætlunina til samræmis við breyttan veruleika eða breytta spá Seðlabankans. Ég segi: Gott og vel. Það hefði verið sjálfsagt mál af hálfu fjárlaganefndar eða fjármálaráðuneytisins, hver svo sem heldur á pennanum hvað þetta varðar, að ráðast strax í slíka endurreikninga þegar þjóðhagsspáin var kynnt hér 20. maí. Þá lægi þetta einfaldlega allt saman fyrir. En ef þetta er svona mikið mál þá höfum við, alla vega við þingmenn Sjálfstæðisflokksins, lagt til, og mér heyrist svo sem að aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar séu meira en tilbúnir í það, að mæta hér til þings í haust og taka stutta og snögga umræðu um fjármálaáætlun á þingstubbi þar sem við getum rætt þessi atriði af einhverju viti.

Það verður nefnilega að geta þess í upphafi að raunveruleikinn er þegar farinn fram úr áætlun. Það var bara síðast í gær eða fyrradag sem okkur birtist bráðabirgðamat Hagstofunnar sem sýnir tæplega 24 milljarða kr. halla hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 þar sem útgjöldin vaxa tvöfalt hraðar en tekjurnar. Ekki er þetta góðs viti hvað framhaldið varðar. Okkur er tjáð af hálfu meiri hlutans að það sé rétt að samþykkja fjármálaáætlanir með þessum hætti og úr þessu verði bætt við fjárlagagerðina næsta haust. Það er rangt. Það er í andstöðu við lög um opinber fjármál og þarna er öllu snúið á hvolf því það er einmitt fjármálaáætlunin sjálf sem styður við fjárlagagerðina en ekki öfugt. Þetta er augljóst þegar maður les texta laganna. Fjármálaáætlun er fimm ára stefnumörkun. Hún á að liggja til grundvallar fjárlagafrumvarpi og hún er ekki aðeins formleg áætlun um fjárhæðir hverju sinni heldur stjórntæki sem á að gefa Alþingi raunhæfa mynd af stöðu ríkisfjármálanna hverju sinni. En áætlunin verður auðvitað aldrei betri en forsendur hennar og það er bara grunnatriði í allri áætlanagerð að byggja á áreiðanlegustu gögnum og upplýsingum sem fáanlegar eru hverju sinni. Ég get bara fullyrt að það er ekkert fyrirtæki í landinu, það er ekki til sú stjórn í landinu sem teldi sér heimilt eða teldi það forsvaranlegt að samþykkja fimm ára rekstraráætlun á grundvelli talna sem stjórnendurnir vita að eru rangar. Ég get fullyrt að svo er ekki og ég held að slíkir stjórnarhættir væru taldir ámælisverðir í viðskiptalífinu, jafnvel meira að segja þannig að stjórnendurnir gætu verið dregnir til ábyrgðar. En hér, með stærsta rekstur landsins, er okkur boðið upp á þetta.

Þetta eru engar smá breytingar, frú forseti, frá þeirri þjóðhagsspá sem Seðlabankinn kynnti í febrúar og núna þeirri nýjustu sem var kynnt í maí. Hagvöxtur ársins 2027 er að lækka um kannski 4–6 prósentustig, úr 2,4% í 1,8%. Verðbólgan fer vaxandi, úr 4,3% í 5,2, og atvinnuleysi fer hækkandi líka, úr 4,8% í 5,7%. Meiri hluta fjárlaganefndar er þetta ljóst og víkur að þessu í lokakafla nefndarálitsins, viðurkennir vandamálið og ómerkir auðvitað alla fjármálaáætlunina í heild sinni þegar hann þráast við að uppfæra áætlunina sjálfa. Auðvitað er það ekki svo að það sé fjárlaganefndar eða ríkisstjórnarinnar að velja bara hagstæðustu spána, eldri spá eins og var gert í þessu máli. Það er ekki til þess fallið að auka trúverðugleika í áformum stjórnvalda. Það er líka í andstöðu við lög um opinber fjármál. Þá vil ég, frú forseti, sérstaklega nefna 8. gr. laganna sem er fortakslaus og mælir fyrir um að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám þar sem tekið er mið af fjárhagslegum og efnahagslegum áhrifum af áformum stjórnvalda. Gera skal grein fyrir þeim forsendum sem stefnumörkunin byggist á. Þetta er fortakslaus krafa laganna. Þessari grein til fyllingar má vísa til 6. gr. laganna sem fjallar um grunngildin, um varfærni og gegnsæi og annað slíkt. En ekki er farið að þessum skilyrðum laganna hér. Það eru engin viðurlagaákvæði í lögum um opinber fjármál en það er ekki mikill myndugleiki í því að ætla sér að afgreiða fjármálaáætlun á grundvelli talna sem við vitum öll að eru rangar.

Það kann að þjóna stundarhagsmunum ríkisstjórnar hennar eða formanna einstakra stjórnmálaflokka að láta sem ekkert sé og halda kúrs, eins og það hefur stundum verið orðað hér í þessum þingsal, halda bara áfram og láta eins og ekkert sé með fullyrðingum um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð þegar stórum spurningum um veggjöld og tolla og annað slíkt er ekki svarað. Halda áfram uppi yfirlýsingum um hallalaus fjárlög á næsta ári, leggja fram einhvers konar leið að því markmiði í þessari fjármálaáætlun. En svo þegar harðnar á dalnum, forsendurnar reynast rangar, þá er planið ekki uppfært. Það er bara enn þá sama gamla planið. Þetta er einkennilegt og er auðvitað ekki til þess fallið að ljá aðgerðum stjórnvalda nokkurs konar trúverðugleika.

Þá komum við að næsta efni máls míns sem eru verðbólguvæntingar. Samkvæmt nýjustu Peningamálum vænta markaðsaðilar 3,9% verðbólgu eftir eitt ár og hafa þær væntingar hækkað um 0,2 prósentustig frá síðustu könnun. Þannig að markaðsaðilar vænta þess nú að meginvextir Seðlabankans haldist í 7,75% út árið. En í janúar, sem liggur að baki eldri Peningamálum, væntu þeir 6,5% vaxta í árslok þannig að verðbólguvæntingar markaðsaðila hafa versnað. Það kemur til af ýmsu. Það eru átök í Mið-Austurlöndum, það eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar sjálfrar, það er hækkandi hitastig á vinnumarkaði og ótti við að forsenduákvæði kjarasamninga bresti og, eins og segir í álitsgerð fjármálaráðs, eru verðbólguvæntingar enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi. Þetta er kjarnaatriði málsins; trúverðugleiki aðgerða ríkisstjórnarinnar.

Ég átti orðaskipti við hæstv. forsætisráðherra hér í þessum sal 20. maí síðastliðinn þar sem ég spurði hæstv. ráðherra einmitt út í þetta, hækkandi verðbólguvæntingar aðila, og hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við því til þess að vinna bug á verðbólgunni líkt og hún sagðist ætla að gera í aðdraganda síðustu kosninga. Svör hæstv. ráðherra voru óljós og efnisrýr. Ég óskaði þess að fá að vita, einmitt í ljósi þess að Seðlabankinn væri að spá því að verðbólgan næði ekki markmiði fyrr en í byrjun árs 2028, hvað ríkisstjórnin hygðist gera til að flýta því að markmiðinu yrði náð í raun þannig að verðbólgan gæti minnkað og vextir lækkað. Ég vísaði sérstaklega í þessar verðbólguvæntingar og nefndi að það væri augljóst að aðilar á markaði tryðu því ekki að það sem ríkisstjórnin væri að bjóða upp á dygði til. Eins og ég segi var svar hæstv. ráðherra efnisrýrt og til einskis nýtt að mínu viti en ekki bætir það úr sá háttur sem hér er hafður uppi, að leggja á borð einmitt fyrir þessa aðila, fyrirtækin í landinu, fólkið í landinu, fjármálaáætlun sem telur tæpar 200 síður á grundvelli úreltra gagna. En hér erum við komin. Svona er þetta engu að síður.

Mér finnst ástæðulaust að vera að ræða einhverja kafla. Í fyrri umræðu málsins átti ég orðaskipti hér og fjallaði t.d. um dómstóla og fangelsin í landinu og ég er búinn að víkja að framhaldsskólastiginu en það er ástæðulaust að vera að ræða um það hvort áætlun dómstóla árið 2027 eigi að vera 4.545 milljarðar eða eitthvað annað, því það veit það enginn, ekki nokkur maður, vegna þess að dæmið gengur ekki upp. Enn og aftur erum við komin á þann stað að hér eru sprenglærðir hagfræðingar sem fara með stjórn ríkisfjármálanna, sem fóru með himinskautum í aðdraganda síðustu þingkosninga, og leysa úr sínum raunhæfu verkefnum sem fyrir þau eru lögð með þessum hætti. Ég held að einkunnin sem kollegar alla vega hæstv. fjármálaráðherra myndu gefa slíkri úrlausn í háskólanum væri fall, frú forseti.