157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:57]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætlaði að fjalla aðeins um nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar um fjármálaáætlun sem er í raun og veru eitt furðuverk. Já, þetta er eitt furðuverk, þetta nefndarálit meiri hlutans. Hvers vegna segi ég það, frú forseti? Vegna þess að hér er verið að fjalla um áætlun til næstu fimm ára með ákveðnum forsendum og í því umhverfi sem stjórnvöld hafa útbúið í kringum fjárlög ríkisins. Síðan fjármálaáætlun var lögð fram fyrst þá hefur að sjálfsögðu ýmislegt breyst. Það er í eðli hlutanna að þeir breytast og aðstæður breytast og eitthvað gerist þannig að forsendur breytast. Í nefndarálitinu á blaðsíðu 16 er nefnilega að finna eftirfarandi, með leyfi frú forseta ætla ég að lesa aðeins upp úr því:„Eins og rakið er í kaflanum um efnahagshorfur hefur Seðlabankinn gefið út nýja þjóðhagsspá sem getur breytt ýmsum forsendum áætlunarinnar. Einnig eru aðrar forsendubreytingar, svo sem frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem varðar m.a. styttingu bótatímabils. Breytingar á frumvarpinu í meðförum Alþingis leiða til þess að gjöldin lækka ekki jafn mikið og gert var ráð fyrir í forsendum áætlunarinnar. Þar munar um 1,2 ma.kr. á næsta ári og um 3,7 ma.kr. árlega til loka áætlunartímabilsins. Þessi frávik eru þó ekki mjög veigamikil í samhengi við ýmsar aðrar forsendur, t.d. um atvinnuleysisstig. Nú spáir Seðlabankinn um 0,7% meira atvinnuleysi heldur en forsendur áætlunarinnar miðuðu við. Hvert prósentustig getur vegið á milli 9 og 10 ma.kr. í útgjöldum ríkissjóðs.“

Hvað er að gerast? Meiri hluti fjárlaganefndar veltir fyrir sér forsendubreytingunum. Ef um væri að ræða smávægilegar breytingar þá væri það ágætisábending að benda á það hérna í álitinu. En þegar þessar breytingar eru skoðaðar, frú forseti, þá kemur í ljós að þær hafa eiginlega allar mikið vægi. Þetta eru nokkrar breytingar, atvinnuleysistölur, að það sé meira atvinnuleysi en spáð var, gert var ráð fyrir um, 0,7%, skiptir ríkissjóð máli upp á 6–7 milljarða á hverju ári. Sumum gæti fundist það lág tala en minnugir þess að hæstv. ríkisstjórn gerði ráð fyrir að á næsta ári myndi afkoma ríkissjóðs vera 1,1 milljarður í plús — mín gamla reikningskunnátta segir mér að nú sé afkoma ríkissjóðs á næsta ári strax komin í mínus 5–6 milljarða.

Höldum áfram, frú forseti. Breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar átti að spara ríkinu einhverja milljarða. Nú er búið að draga hluta af þessum breytingum til baka. Það verður sem sagt minni sparnaður en áætlað var. Meiri hlutinn viðurkennir að þetta séu 1,2 milljarðar. Þá er ríkissjóður kominn í 6, 7, 8 milljarða í mínus á næsta ári. Svo mun það aukast næsta árið þar á eftir vegna þess að þá er talið að þetta muni hafa mun meiri áhrif eða 3,7 milljarða þannig að ástandið versnar. Þjóðhagsspáin varð neikvæðari en menn bjuggust við. Það er minni hagvöxtur og minni skatttekjur. Og hvað eru það margar krónur? Það eru 5–7 milljarðar. Þá er halli næsta árs þegar kominn yfir 10 milljarða, líklega kominn upp í 12–14 milljarða. Vaxtakostnaður og verðbólgan veldur því að ríkisfjármálin munu versna enn frekar ef þetta gengur eftir. Það mun líka kosta, eins og rakið er í minnihlutaáliti 2. minni hluta hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar þar sem þetta er metið mjög gaumgæfilega upp á 5–8 milljarða. Vaxta- og verðbólgukostnaður ríkisins á næsta ári vegna minni efnahagsumsvifa og verðbólgu er metinn 5–8 milljarðar. Þá erum við komin í halla á næsta ári úr plús 1 milljarði í mínus 15–20 milljarða.

Þetta segir hv. meiri hluti fjárlaganefndar, með leyfi frú forseta les ég hér niðurlag þeirra álits:

„Meiri hlutinn gerir ekki tillögur um breytingar á áætluninni að þessu sinni, þar sem ekki liggur fyrir heildstætt mat“ — ekki heildstætt mat — „á öllum þeim forsendubreytingum sem orðið hafa frá því að áætlunin var lögð fram. Brýnt er að gerð verði grein fyrir þeim í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 í haust. […] Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.“

Hvað erum við að lesa? Hvað erum við að horfa á? Hverju erum við að átta okkur á? Við erum að átta okkur á því að meiri hlutinn sér að allar forsendur eru að breytast. Smávægilegar forsendur? Nei, við erum að tala um 15–20 milljarða, einhvers staðar á því bili. Þetta eru ekki smávægilegar forsendur. Það voru nú ekki fáir svitadroparnir sem runnu hér þegar ríkisstjórnin var að reyna að koma á fjárlögum úr mínus í plús, það voru nú ekki fáir svitadroparnir sem spruttu fram á enni stjórnarliða þegar allt var lagt í sölurnar fyrir það að geta hér flaggað hallalausum fjárlögum. Nú er það horfið, frú forseti. Þær breytingar á forsendum segir meiri hlutinn að skipti engu máli, þetta verði skoðað í haust. Ég vil bara benda á að 2. minni hluti er í sínu áliti með mjög greinargóða útreikninga á afleiðingum þessara breyttu forsendna og þarf ekki að bíða fram í október eða nóvember til að sjá breytingar á áætlunum ríkisins. Auðvitað vona þau að efnahagsaðstæður eða einhverjir hlutir komi inn sem geti breytt þeim og bjargað, sem geti breytt þessu og bjargað þeim. Þau vona að eitthvað hagstætt gerist fyrir fjárlög ríkisins. En útlitið er nefnilega alls ekki gott.

Í umsögn fjármálaráðs fyrr í vor kemur fram að þetta eru síbrotamenn að þessu leytinu til, hv. meiri hluti fjárlaganefndar, að þau hafa áður leikið þennan leik og fengið skammir fyrir, ákúrur frá fjármálaráði vegna þess að í álitsgerð fjármálaráðs vegna fjármálaáætlunar segir um þessar áætlanir þeirra áður en þessar forsendur breyttust. Þeir segja t.d.: „Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika“ — óútfærðar afkomubætandi aðgerðir, þ.e. áður en þessar forsendur breyttust þá voru þau með einhverjar fyrirætlanir um afkomubætandi aðgerðir sem eru algjörlega óútfærðar. Þannig að það hefur komið í ljós að hér er um hér er um síbrotamenn að ræða. Þeir segja bara eitthvað og vona síðan að allt gangi vel. Og hvað var fjármálaráð að tala um þegar þetta gerðist? Þeir voru að tala um t.d. fækkun ríkisstarfsmanna. Algerlega óútfært, frú forseti. Þeir voru að tala um aðrar sértækar hagræðingaraðgerðir án þess að nokkuð væri um það fjallað hvernig það yrði framkvæmt. Síbrotamenn að þessu leytinu til. Þegar meiri hluti fjárlaganefndar gerir sér vonir um að það verði viðsnúningur í framleiðni í landinu þá segir fjármálaráð óljóst hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni. Þeir eru bara að vona það, frú forseti. Þeir eru berir að því, hæstv. meiri hluti fjárlaganefndar, að setja fram einhverjar óskir, óskalista, draumsýn, einhverjar tálsýnir um að einhverjir hlutir gerist þeim í hag og þeir fá skammir fyrir það frá fjármálaráði. Síðan segir fjármálaráð að verðbólguvæntingar séu enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.

Frú forseti. Þetta er mergur málsins vegna þess að ef þessi ríkisstjórn ætlar að halda fjármálaáætlun til streitu án þess að taka til greina breyttar forsendur, sem eru verulegar og ég hef farið hér yfir, þá tapar hún trúverðugleika. Og afleiðingarnar af því að tapa trúverðugleika eru hverjar? Hverjar eru afleiðingar þess? Einfaldlega þær að verðbólguvæntingar munu vaxa vegna þess að þær byggjast á trúverðugleika. Þetta er hagfræði 101, frú forseti, og er augljóst.

Ég verð að leggja til, eins og margir aðrir hv. þingmenn hafa gert hér, að þessum hv. meiri hluta fjárlaganefndar verði gert að fara aftur á sínar skrifstofur og vinna þetta upp aftur, láta vinna þetta upp aftur og leggja þetta fram hér svo fullnægjandi sé fyrir þingheim vegna þess að þetta gengur ekki. Ef þau þurfa sumarið í þetta þá verður að boða til þings í ágúst, eins og sumir hv. þingmenn hafa lagt til, þar sem þetta verður rætt hér í þingsalnum þegar þau eru komin til baka með uppfærða fjármálaáætlun sem gæti staðist, frú forseti. En af hverju vilja þau ekki, frú forseti? Vegna þess að þá kæmi í ljós annaðhvort að þau yrðu að skila fjárlögum með stórum halla, kannski 20 milljörðum, eða þau yrðu að kynna þjóðinni nýjar skattahækkanir. Það eru bara tvær leiðir til vegna þess að hæstv. ríkisstjórn er fyrirmunað að draga saman útgjöldin. Afleiðingar af svona eru minni trúverðugleiki, eins og ég sagði, minna gagnsæi í fjármálum ríkisins og síðast en ekki síst markleysi stjórnmálamanna, að leggja fram áætlun sem augljóst er að muni ekki standast. Það kemur auðvitað í bakið á okkur stjórnmálamönnum að vinna svona.

Ég heyrði í hv. framsögumanni þessa álits og ég heyrði það að það væri ekki óalgengt að forsendur breyttust, sem er alveg hárrétt, ég skil það vel. Það er ekkert óalgengt að forsendur breytist en við erum að tala um lítillega. Þetta eru ekki litlar breytingar á forsendum, 20 milljarðar, 15–20 milljarðar eru ekki litlar breytingar. Kannski er hæstv. ríkisstjórnin að vonast til þess að þessar forsendur gangi eitthvað til baka, að atvinnuleysi minnki á ný, verðbólga minnki á ný, framleiðni aukist, atvinnuleysi dragist saman o.s.frv. Kannski er hún að vonast til þess að eftir tvo mánuði líti þetta betur út.

Frú forseti. Við getum ekki stjórnað landinu með dagdraumum um að eitthvað gerist okkur í hag, bara ef við sitjum einhvers staðar og bíðum eftir að hlutirnir gerist og vonum að þeir gerist. Það er eins víst, frú forseti, að það muni ekki gerast. Þá er betra að ríkisstjórnin taki til hendinni og reyni að breyta hlutunum í rétta átt.

Frú forseti. Ég spurði ítrekað hv. framsögumann nefndarálitsins hér í fyrri fyrirspurn þegar hann flutti sína ræðu hvaða skattahækkanir það væru sem ríkisstjórnin hygðist kynna þjóðinni í haust og hvar eigi að bera niður í haust, í hvaða atvinnugrein? Aftur á landsbyggðinni? Í ferðaþjónustu, sjávarútvegi, iðnaði, hjá bifreiðareigendum, ökumönnum og vegfarendum? Það voru engin svör. Hann gaf engin svör við því. Mun hv. ríkisstjórn hafa kjark til þess að koma í haust og segja: Heyrðu, það verður enginn afgangur af fjárlögum á næsta ári. Við verðum 18–20 milljarða í mínus. Mun hún hafa kjark til þess? Ég held ekki. Hún hefur ekki sýnt það hingað til, þessi ríkisstjórn, að hún sé kjörkuð. Hún mun leggja á nýja skatta. Það er það sem hún mun gera. Mun hún draga saman í ríkisútgjöldum? Nei, hún hefur ekki sýnt það hingað til, hún hefur talað um það en hún hefur ekki sýnt það. Þannig að því miður, frú forseti, á almenningur í landinu og fyrirtæki von á því í haust að kynntar verði til leiks nýjar skattahækkanir frá þessari ríkisstjórn.

Hallalaus fjárlög á næsta ári eru augljóslega farin í vaskinn. Afgangurinn, sem átti að vera 1,1 milljarður, sem var reyndar minna en 0,1% af fjárlögum, er farinn í vaskinn og 20 sinnum hærri fjárhæð en það vegna meira atvinnuleysis og breyttra efnahagsforsendna. Og svo sagði hv. framsögumaður meiri hlutans hér áðan þegar hann var spurður af stjórnarandstöðuþingmönnum, með leyfi frú forseta, að það væri svartnætti sem væri dregið upp af stjórnarandstöðu og að þetta væri ekki í samræmi við raunveruleikann. Þetta er einmitt í samræmi við raunveruleikann, þessar breyttu forsendur. Þetta liggur á borðinu og þetta liggur meira að segja í nefndaráliti meiri hlutans. Það segir það bókstaflega þar sem þetta er talið upp að mestu í lok þeirra álits. Það er málefnalegt, frú forseti, að benda á breyttar forsendur og ræða þær, hversu stórar breyturnar eru og til hvaða ráða megi taka.