157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:18]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir hans góðu ræðu. Nú erum við með, svo vægt sé til orða tekið, mjög skattaglaða ríkisstjórn sem telur að það sé lausnin við öllum heimsins vandamálum og sérstaklega útgjaldagleði hennar af því að vinstri mönnum ferst það einstaklega vel að eyða annarra manna fé. Við erum hér með vinstri stjórn sem eyðir meiru en hún aflar og ætlar alltaf að sækja fé dýpra og dýpra í vasa skattgreiðenda. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann og ætla að vera á svipuðum nótum og ég var við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson, sem kemur nú úr öðrum flokki, Framsóknarflokknum, og langar að heyra álit hv. þingmanns á því og hvort hann telji það vænlegt að ætla að skatta sig út úr þessu. Nú er þessi fjármálaáætlun að boða gríðarlega háar skattahækkanir sem að sjálfsögðu, þó að þær beinist gegn hinum og þessum atvinnugreinum, enda alltaf á fólkinu í landinu. Telur hann að það sé ábyrg fjármálastefna, horft fram í tímann, að hækka bara skatta og minnka ekki útgjöldin?

Mig langar líka að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það að lækka vaskinn á eldsneytisverði tímabundið — og vill svo heppilega til fyrir ríkisstjórnina að það er akkúrat þegar verðbólgumælingar í ágúst þurfa að vera undir 4,7% — hafi ekki verið meira til þess gert að reyna að láta forsendur kjarasamninga haldast heldur en að reyna að koma til móts við heimilin því þá hefði verið nær að lækka vaskinn lengur en það?