fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans andsvar. Já, skattar. Ég trúði því í einlægni, frú forseti, að Viðreisn væri borgaralegur flokkur. Fljótlega eftir að þessi ríkisstjórn tók við völdum fóru að koma vöflur á mig varðandi þetta og ég velti fyrir mér af hverju þetta er. Það hefði verið svona meira í þeirra anda sem borgaralegs flokks að draga saman ríkisútgjöldin örlítið og fara ekki svona mikið út í skattahækkanir eins og raun ber vitni. Ég velti svolítið fyrir mér hvers vegna það skyldi vera. Hvað öfl skyldu þarna vera á bak við? Ég trúi því varla að Samfylkingin, sem er þó mjög viljug að hækka skatta og þá dreymir held ég bara skattahækkanir á nóttinni, vakna bara upp með andfælum ef þeim dettur einhverjir nýir skattar í hug og eru fljótir að skrifa það hjá sér þannig að þeir gleymi því ekki — ég velti fyrir mér hvort Viðreisn hafi gefið svona hroðalega eftir hvað þetta varðar. En það lítur þannig út að þessi stjórn sé algerlega skilgreind sem algjör vinstri stjórn vegna þess að það sem þau hafa gert hingað til er einungis skattahækkanir. Það eru einungis skattahækkanir. Það að ná böndum á ríkisútgjöldin hefur ekki verið þeirra verkefni. Ég minnist þess ekki að það séu margar aðgerðir sem hafa gengið í þá áttina, en kannski verð ég minntur á það.