fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Já, ég get tekið undir það með hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni að þegar kemur að skatta- og gjaldamálum og efnahagsmálum þá er Viðreisn algerlega gengin fyrir björg og er jafnvel á köflum orðin vinstri sinnaðri heldur en vinstri flokkarnir sem hún er í ríkisstjórn með. Það hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir marga kjósendur Viðreisnar sem töldu sig vera að kjósa hægri flokk í síðustu kosningum að horfa upp á vegferð Viðreisnar þegar kemur að skattlagningu. En nú er það samt þannig að hæstv. ríkisstjórn hefur boðað sparnað og kom með að mig minnir tillögur að 57 aðgerðum sem átti að fara í en aðeins fimm er búið að hrinda í framkvæmd af þessum 57. Og það er ekki verið að skera fituna af ríkisrekstrinum, það er alveg augljóst, það á bara að sækja hærri skatta og gjöld. En svo dettur hæstv. ríkisstjórn samt í hug, núna þegar risastórir árgangar eru að koma núna inn, að skera niður framhaldsskólana um 4 milljarða næstu árin, 4 milljarða. Mig langar bara að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum eiginlega um þennan boðaða niðurskurð á framhaldsskólunum? Telur hann að ríkisstjórnin muni nokkuð standa við stóru orðin um að reyna að skera fituna af ríkisrekstrinum?