157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:24]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Já, það var gott að hv. þingmaður minnti mig á þessar aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað eða hrint í framkvæmd sem eru kannski fimm. Ég veit ekki alveg hvaða framkvæmdir það eru en ég veit þó um eina sem þessi ríkisstjórn hefur gengið í og það er sameining sýslumannsembættanna. Nýlega boðaði hæstv. dómsmálaráðherra að það ætti að sameina lögreglustjóraembættin og fækka þeim úr níu í fjögur, fimm. Þessi aðgerð lýsir þessari ríkisstjórn svolítið vel. Þetta var reyndar ekki hagræðingaraðgerð, að sameina sýslumannsembættin, og gera einn sýslumann úr þessum níu sem voru, heldur átti þetta að vera einhvers konar vinnusparnaður. Þetta kemur mest niður á landsbyggðinni. Og ef lögreglustjóraembættum verður fækkað um helming þá mun það verða úti á landi. Reyndar sagði hæstv. dómsmálaráðherra að höfuðborgarsvæðið yrði ekki undanskilið en ég veit ekki hvað ætti að sameina hér. Hér er bara einn lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, annar á Suðurnesjum og svo ríkislögreglustjóri. Kannski hyggst hæstv. ráðherra sameina eitthvað af þessum þremur embættum, ég veit það ekki. En ég geld auðvitað varhuga við því líka vegna þess að það er ekki gott að eitt embættið sé miklu stærra en öll önnur embætti og enginn samanburður næst þegar slíkt er gert. Það er æskilegt að hafa tvö eða þrjú af svipaðri stærð til þess að samanburður náist. En ég geld varhuga við því þegar verið er að spara úti á landi. Landsbyggðin er skattlögð og það er sparað úti á landi í ríkisrekstri.