fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Við höfum séð það og heyrt að meiri hlutinn áréttar sérstaklega mikilvægi efnahagsforsendna fyrir mat á tekjum og útgjöldum, afkomu og skuldastöðu hins opinbera í sínu áliti. Hv. þingmaður hefur rakið það alveg ágætlega hvernig matið sem liggur til grundvallar þessari fjármálaáætlun sé algerlega brostið. En þrátt fyrir það hefur komið fram hjá meiri hlutanum að hann sjái ekki tilefni til þess að gera breytingar á áætluninni, með leyfi forseta, „að þessu sinni“, þótt það sé auðvitað mikið tilefni til þess. Það stendur þó til, það kemur fram í fyrirætlunum meiri hlutans að þetta verði skoðað, því er sem sagt beint til ráðuneytisins að það verði farið ofan í kjölinn á þessum breyttu forsendum í haust og gerð grein fyrir þessum breyttu forsendum. Mig langar að spyrja hv. þingmann af hverju við getum þá ekki bara unað því að þessi vinna fari fram í haust. Af hverju getum við ekki bara frestað þessu og skoðað þetta betur í haust, afgreitt þetta mál eins og það stendur núna, gegn betri vitund, kíkt svo bara á þetta með haustinu eða kannski bara fyrir jól? Af hverju liggur okkur á að skoða þetta betur eins og þetta lítur út núna?